Verður þriðja verksmiðja Volvo í Evrópu?
Bílaframleiðandinn ætlar að auka sölu á heimsvísu úr 800.000 í 1,2 milljónir um miðjan áratuginn
Bílaframleiðandinn Volvo sem í hugum margra er enn sænskur, er í raun í meirihlutaeigu Zhejiang Geely Holding Group í Kína.
En þrátt fyrir að sænska „eðalmerkið“ sé orðið svolítið kínverskt, er greinilega stefnt að áframhaldandi viðveru í Evrópu, því samkvæmt frétt frá Reuters fréttastofunni mun Volvo Cars hafa hug á því að byggja þriðju verksmiðjuna í Evrópu fyrir miðjan áratuginn, að því er fréttastofan hefur eftir Björn Annwall fjármálastjóra Volvo. Þörf er á verksmiðjunni til þess að ná framleiðslumarkmiði upp á 1,2 milljónir bíla á ári.
Fyrirtækið, sem er með aðsetur í Gautaborg, varð næststærsta skráning á markaði í Svíþjóð til þessa eftir útboð í lok október með verðmat upp á 18 milljarða dollara. Verksmiðjur Volvo eru nú tvær í Evrópu; önnur í Torslanda í Svíþjóð og hin í Gent í Belgíu.
Hér á árum áður var Volvo einnig með verksmiðju í Uddevalla, norðar á ströndinni fyrir ofan Gautaborg, en þeirri verksmiðju var lokað árið 2013 í hagræðingarskyni.
„Við höfum þörf fyrir báðar verksmiðjurnar okkar í Evrópu… en við þurfum fleiri. Þess vegna viljum við byggja þriðju verksmiðjuna,” sagði Annwall við Automobilwoche, sem er systurútgáfa Automotive News Europe.
Hvar sú verksmiðja verður staðsett er ekki enn ljóst, sagði hann. Ekki var frekari upplýsingar að fá frá Volvo Cars að sinni.
Bílaframleiðandinn, sem nýlega kom á almennan hlutabréfamarkað, er í meirihlutaeigu Zhejiang Geely Holding Group í Kína og framleiðir nú um 800.000 bíla á ári í verksmiðjunum tveimur.
Volvo hefur sett sér sölumarkmið upp á 1,2 milljónir seldra bíla á ári og er ætlunin að ná því markmiði fyrir 2025 og verður helmingur framleiddra bíla rafknúinn. Volvo ætlar eingöngu að framleiða rafbíla fyrir árið 2030.
(Frétt frá Reuters á Automotive News Europe)
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein