Jeep Wrangler Overlook
SEMA-sýningin í Las Vegas sneri aftur úr „Covid-fríi” á þessu ári og er haldin þessa dagana. Eins og hefð er fyrir koma bandarísku Stellantis vörumerkin Jeep, Ram, Dodge og Mopar með mikið úrval á sýninguna.
Vörumerkin eru komin með sjö bíla; fjóra frá Jeep, tvo frá Ram og einn frá Dodge. Sum sýna núverandi Mopar vörur og hugsanlega framtíðarhluti, á meðan aðrir sýna mjög flotta sérpantaða hluti og útbúnað. Autoblog-vefurinn fjallaði um þetta:
Og þeir byrjuðu á kannski áhugaverðustu hugmyndinni sem er til sýnis: Jeep Wrangler Overlook.
Það vekur strax athygli að hugmyndabíllinn er lengri en venjulegur Wrangler. Hann er reyndar heilu feti lengri eða sem samsvarar 30 sentímetrum.
Hann bætir ekki bara við farmrými, heldur bætir hann við farþegarými. Það er þriðja sætaröð í Overlook. Þessi sæti þurftu einnig sérsniðið afturþak í „safarí-stíl“. Það er 12.5 cm hærra en venjulegt Wrangler þak, til að skapa rými fyrir farþega í aftursætum. Það bjó líka til pláss fyrir auka glugga.
Farþegar í framsæti fá einnig glæsilegan þakhluta í einu stykki með sprettiglugga, og innréttingin er með svörtu leðri og „brons“ áherslum.
Aðrar breytingar á yfirbyggingu fela í sér sérsniðið húdd, mjórri framstuðara til að bæta aðkomuhornið og breikkaðan afturstuðara til að vernda lengra skottið.
Hann fær einnig sérsniðin framstuðaraljós, Jeep Performance Parts (JPP) ljós á A-bitann og hliðarþrep úr rörum.
Overlook er einnig á Jeep Performance Parts (JPP) 2 tommu lyftibúnaði með Fox dempurum og 20 tommu felgum með 37 tommu dekkjum.
„Við hefðum ekki haldið að þriggja sætaraða Wrangler væri eitthvað sem færi í framleiðslu,“ segja þeir hjá Autoblog.
En, þetta lítur mjög vel út. Og þegar Land Rover býður nú þegar upp á þriðju sætaröðina í Defender, og vinnur að „teygðri“ útgáfu, eru þeir hjá Autoblog farnir að velta því fyrir sér hvort Jeep ætti að hugsa um enn teygðari Wrangler.
(grein á vef Autoblog – myndir frá Jeep)
Umræður um þessa grein