SsangYong, sem kemur til Evrópu sem rafbíll árið 2023, sést á nýjum kynningarmyndum
Væntanlegur millistærðarjeppi SsangYong hefur fengið nafnið „Torres“. Bíllinn, sem hingað til hefur haft vinnuheitið „J100“, dregur nafn sitt af Torres del Paine þjóðgarðinum í Patagóníu.
Með tilkynningunni frá SsangYong eru nokkrar kynningarmyndir sem gefa betri sýn á bílinn en hönnunarskissurnar sem birtar voru áður; þetta er harðgerður sportjepplingur og eru mikilar breytingar frá núverandi SsangYong-línu.
Hann er enn með lóðréttu grillrimarnar og það sem lítur út fyrir að vera innbyggt varadekk á afturhleranum. Á myndinni af bílnum aftanverðum má sjá eitthvað svipað og aukabúnaðinn sem festur er á hliðina [„Gear Carrier“] á Land Rover Defender. SsangYong virðist ætla sér að markaðssetja bílinn sem farartæki fyrir útivistarfólk ef svo má að orði komast.
Á meðfylgjandi myndum eru felgurnar á Torres minni en þær sem voru á farartækinu á upprunalegu skissunum, en sá bíll var með stórum torfærudekkjum eins og sést hér:
SsangYong mun hefja framleiðslu á hinum „harðgerða og sterkbyggða“ Torres í júní fyrir markaðinn í Suður-Kóreu. Evrópska útgáfan af Torres verður eingöngu rafknúin (vinnuheiti þess bíls var „U100“) og kemur sú gerð ekki fyrr en undir lok árs 2023.
Þegar að því kemur mun rafdrifna gerðin keppa við Skoda Enyaq og Volkswagen ID.4 en á lægra verði, að því er fréttir herma.
Engar tæknilegar upplýsingar um bílinn hafa verið opinberaðar, þó staðfesting á bæði rafknúnum og brunaaflrásum bendi til þess að hann gæti verið byggður á aðlöguðum undirvagni bíla með brunavél, líkt og nýi Korando e-Motion. Torres mun lenda á milli Korando og Rexton í framboði SsangYong.
Framleiðandinn hefur áður greint frá að verið sé að þróa alrafmagnaðan pallbíl og gæti sami undirvagn verið notaður fyrir þann bíl og Torres.
(frétt á vef Auto Express – myndir frá SsangYong)
Umræður um þessa grein