Ineos í samstarf við Hyundai til að nýta vetni
Jarðolíurisinn Ineos Group tekur höndum saman við Hyundai Motor í því skyni að veita bílum sem nota vetni sem eldsneyti þá uppörvun sem þeir þurfa til að verða almennari.
Fyrirtækið sem er með aðalstöðvar í London mun kanna tækifæri til að framleiða og veita vetni til Hyundai sem hefur búið til eldsneytissellubíla (vetnisbíla) í litlu magni síðan 2013.
Fyrirtækin tvö munu einnig vinna saman að því að kanna notkun vetniseldsneytikerfis Hyundai í Grenadier, Jeppann sem líkist Land Rover Defender, sem Ineos ætlar að koma á markað á næsta ári, sagði Hyundai í yfirlýsingu á mánudag.
Framleiðendur bíla og efna eru að finna sameiginlegan grunn í leit sinni að vetnisverkefnum. Verið er að setja markmið á heimsvísu til að fella brennsluvélina á brott og draga úr kolefnisframleiðslu iðnaðar.
Ineos, sem framleiðir 300.000 tonn af vetni árlega, gæti gegnt mikilvægu hlutverki við að koma upp þeim innviðum sem Hyundai þarfnast fyrir gerðir eins og Nexo vetnissportjeppa til að ná vinsældum í Evrópu.
„Það er orðrómur í gangi og það er að viðleitni að halda áfram og gera hluti“, sagði Peter Williams, yfirmaður tækni hjá Ineos í viðtali. „Okkur langar til að gera eitthvað af alvöru á næstu fimm árum“.
Fyrir Ineos sem hjálpar til við að koma vetnishagkerfinu af stað myndi það opna á meira aðlaðandi notkun fyrir framleiðslu fyrirtækisins á vetninu, sem er aukaafurð frá rafgreiningu saltvatns til að búa til klór.
Ineos notar það nú sem eldsneyti og til hreinsunar á brennisteini í hreinsunarstöðvum. Fyrirtækið á einnig neðanjarðargeyma sem hægt er að nota fyrir vetni.
Þótt hlutfallslegur vöxtur rafbíla sem nota rafhlöður hafi valdið nokkrum vafa um framtíð vetnisbíla sjá Hyundai og Toyota enn gífurlega möguleika í tæknilegum kostum þeirra.
Hægt er að fylla á vetnisgeyma hraðar en rafhlöður endurhlaðast og vetnisbílar geta boðið meiri akstursdrægni, sérstaklega í þyngri ökutækjum.
„Ljóst er að Hyundai vill sjá vetnistækni sína á sviði eldsneytis notaða á heimsvísu“, sagði Williams. „Þeir stofnuðu fyrirtæki og þeir vilja stækka það og komast til Evrópu og líklega Bandaríkjanna“.
Hyundai stefnir að því að ná allt að 15 prósentum af vetniseldsneyti á vörubifreiðamarkaði í Evrópu árið 2030 og beinast að löndum þar á meðal Þýskalandi og Hollandi. Fyrirtækið sendi sinn fyrsta hóp slíkra flutningabíla til Sviss fyrr á þessu ári og ætlar að framleiða 1.600 bíla árið 2025.
Samstarf við Hyundai getur einnig veitt áætlun Ineos brautargengi til að koma sér inn á bílamarkaðinn.
Ineos tilkynnti um áætlanir árið 2019 um að smíða jeppa svipaðan Land Rover Defender.
Þó að Grenadier muni í upphafi keyra á sex strokka bensín- og dísilvélum frá BMW, mun Ineos meta hæfi bílsins að nota vetniseldsneytiskerfi Hyundai einhvern tíma í framtíðinni.
(Bloomberg)
Umræður um þessa grein