Honda ætlar að auka hlut rafbíla
Forstjóri Honda hrósar rafbílum, en brunavélin gæti haldið áfram til ársins 2040
Efnarafall og rafrænt eldsneyti eru í áframhaldandi þróun hjá bílaframleiðandanum
Honda er á hraðri leið til að ná keppinautum á sviði rafbíla á alþjóðlegum mörkuðum, en æðsti yfirmaður fyrirtækisins sagði að brunahreyflar gætu verið áfram til staðar til 2040 og lengur.
Um hraðari umskipti japanska bílaframleiðandans yfir í rafbíla sagði Toshihiro Mibe framkvæmdastjóri: „Ég hef verið í vélaþróunarbransanum í meira en 30 ár, svo persónulega er það svolítið ógnandi.
En ég verð að skilja mínar eigin tilfinningar frá því sem er best fyrir fyrirtækið.“
Það felur í sér stofnun sjálfstæðrar rekstrareiningar í næsta mánuði til að hafa umsjón með þróun rafbíla- og rafhlöðuviðskipta Honda, sem að lokum gæti falið í sér fjárfestingu í hleðslustöðvum, svipað og net Tesla Supercharger-hleðslustöðva, sagði Mibe í Marysville, Ohio, sem er miðstöð fyrirtækisins í Bandaríkjunum.
„Hleðsluinnviðirnir eru ekki á þeim stað sem þeir þurfa að vera fyrir viðskiptavini okkar,“ sagði hann.
Mibe bætti við að Honda sé að framkvæma hagkvæmnirannsóknir á öllu frá hleðslutækjum og háþróuðum rafhlöðum til loftfara og eldflauga, svo og nýtt rafrænt eldsneyti með litlu kolefni sem gæti hjálpað til við að halda brunahreyflum áfram í notkun – í afkastamiklum bílum, stórum vörubílum og flugvélum – fyrir annan áratug eða tvo.
En Mibe bætti við: „Þegar við förum í átt að kolefnishlutleysi, einbeitum við okkur að rafvæðingu og þróun efnarafals – það eru tveir kjarnaþættir framtíðarhreyfanleika“.
Honda hefur farið sér hægt að fylgja stærri keppinautum, frá Volkswagen AG til General Motors Co, í að skuldbinda sig milljarða dollara til að þróa og smíða rafbíla og rafhlöður.
Nú áformar þeir að fjárfesta að minnsta kosti 40 milljarða dollara fram til 2030, með það að markmiði að ýta tvinnbílum og rafknúnum ökutækjum upp í 40% af sölu sinni fyrir lok áratugarins.
Þessar fjárfestingar fela í sér 3,5 milljarða dala sameiginlegt verkefni til að byggja rafhlöður með LG Energy Solution í Jeffersonville, Ohio, sem hefst árið 2025, til notkunar í framtíðar rafbílaverksmiðjum Honda í Norður-Ameríku.
Fyrir þann tíma mun Honda árið 2024 fá tvo nýja rafdrifna sportjeppa, Honda Prologue (sem sést sem 2024 árgerð á myndinni hér að ofan) og Acura ZDX (á myndinni hér að neðan), frá Spring Hills verksmiðju GM í Tennessee.
Mibe staðfesti að Honda er að þróa sína eigin rafbílagrunn, sá fyrsti mun koma til Bandaríkjanna árið 2026, sem og háþróaðar rafhlöður af eigin hönnun fyrir sumar af þessum framtíðargerðum.
(Reuters – Autoblog)
Umræður um þessa grein