Þriðjudagur, 20. maí, 2025 @ 2:14
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

GMC Hummer rafbíll frá GMC frumsýndur

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
21/10/2020
Flokkar: Bílaframleiðsla
Lestími: 5 mín.
281 3
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

GMC Hummer rafbíll frá GMC frumsýndur

  • Með langdrægu akstursviði, 563 kílómetra, og kostar líka sitt

DETROIT – Hummer er kominn aftur og með sex stafa verðmiða. Fyrir 112.595 dollara í Bandaríkjunum (samsvarar 15.637.193 ISK) kemur GMC Hummer Edition 1 sem frumsýndur var þriðjudaginn 20. oltóber með undirvagnsvörn og myndavélum, fjarlægjanlegu Infinity þaki og aksturssviði á rafhlöðu sem er meira en 563 km með þremur rafmótorum.

Áætlað er að framleiðsla á útgáfu 1 hefjist seint á árinu 2021 og síðan framleiðsla á stöðugt ódýrari útgáfum frá hausti 2022 til vors 2024.

GMC leggur mikið upp úr torfærugetu Hummer rafbílsins.
35 tommu sérgerð dekk frá Goodyear All Territory eru staðalbúnaður, en fyrir þá sem vilja meir eru 37 tommu dekk í boði.

Torfærupallbíllinn, sem General Motors mun smíða í verksmiðjunni í Detroit, sem fyrirtækið hefur kallað Factory Zero, verður fyrsta rafknúna farartækið í eignasafni GMC. Verð á útgáfu 1, sem felur í sér flutning til viðskiptavina, er um 5.000 dollurum hærra en fyrir flottustu útgáfu af Cadillac Escalade ESV.

Allar „Edition 1“ gerðirnar verða hlaðnar búnaði og líta eins út, með sama hvíta ytra byrði og „Lunar Horizon“ innréttingu sem er með útgáfu 1 merki.

12,3 tommu skjár fyrir framan ökumanninn og 13,4 tommu snertiskjár í miðju til að stilla aðgerðir, stillingar og stjórna búnaði.
Þeir hjá GMC kalla innréttinguna „Lunar Horzon“ eða „tungltilfinningu“. Mikið hefur verið lagt í innréttinguna og gólfefni eiga að vera sérlega sterk og endingargóð.

Þrátt fyrir að GM hafi frestað afhjúpun Hummer um fimm mánuði vegna kórónaveirufaraldursins hefur framleiðslutíminn haldist á réttri braut, sögðu forsvarsmenn fyrirtækisins.

„Þessi nýstárlegi pallbíll kemur á markað með hraða og tilgangi og færir GM enn eitt skrefið nær rafknúinni framtíð,“ sagði Mark Reuss stjórnarformaður GM í yfirlýsingu. „Hummer rafbíllinn er fullkominn fyrir viðskiptavininn sem vill getu, skilvirkni og afköst“.

Hummer-rafbíllinn mun keppa við R1T frá pallbílaframleiðandanum Rivian sem kostar um 70.000 dollara Tesla Cybertruck, sem einnig mun kosta um 70.000 dollara í best búnu útgáfunni og bensínknúna torfærubílar frá Ford og Jeep.

GMC taldi upp þrjú önnur afbrigði búnaðar sem þeir ætla að vera með á eftir útgáfu 1: 3X fyrir  99.995 dollara, sem hefst haustið 2022; 2X fyrir 89.995 dollara frá og með vorinu 2023; og 2 fyrir 79.995 dollara frá og með vorinu 2024.

Öll verð eru með flutningum. Viðskiptavinir geta pantað hvaða búnaðarútgáfu sem er með 100 dollara innborgun frá og með þriðjudagskvöldi.

Meðal staðalbúnaðar á öllum útfærslum er Super Cruise ökumannshjálparkerfi GM, sexvirkur MultiPro afturhleri, undirvagnsmyndavélar, 35 tommu dekk og Infinity þak.

3X er lægsta snyrtingin sem inniheldur þriggja mótora e4WD kerfið og „Watts to Freedom“ uppfærslu sem er nauðsynleg er fyrir afkastatölurnar sem GM hefur áður kynnt: 1.000 hestöfl, 15.591 Nm af togi og 0 til 100 km hröðun á þremur sekúndum.

Framleiðendur jeppa í Bandaríkjunum hafa lagt mikið upp úr því að geta fjarlægt þakið við ákveðnar aðstæður og Hummer er ekki undanskilinn í því efni.
Torfæru- og klifurgeta eru aðalsmerki við hönnun á þessum nýja Hummer rafbíl.

„Þetta er tækifæri GM til að sýna fjölda tækni og eiginleika sem verða alger andstæða þess sem Volt / ELR og Bolt býður upp á,“ sagði Ivan Drury, yfirmaður hjá Edmunds, í yfirlýsingu. „Með því að koma þessum bíl á markað mun GM loksins fá vöru sem býður upp á innsýn í tækni sem nær niður í gegnum línuna, ólíkt fyrri bílum sínum“.

Hummerinn verður knúinn af Ultium rafhlöðum GM. Þær verða samhæfðar við hraðhleðslutæki, sem geta fyllt næstum 160 kílómetra aksturssvið á 10 mínútum, sagði GM.

Upprunalegi Hummer, síðar þekktur sem H1, var einnig með verðlistaverð vel yfir 100.000 dollara þegar framleiðslu lauk árið 2006 – og margir notaðir seljast fyrir miklu meira í dag, þrátt fyrir mikla eyðslu í akstri.

Markmiðið með því að koma Hummer-nafninu aftur á rafknúnum pallbíl var að smíða pallbílinn með mestu getuna í sögu GM, sagði yfirmaður tæknihönnunar bílsins, Al Oppenheiser, í yfirlýsingu GMC. “Þetta er algjört torfærudýr með einstakt 4WD drifkerfi sem veitir svigrúm ólíkt öllu sem GM hefur áður boðið“.

Við ákveðnar aðstæður fer sjálfvirk beygjuvirkni á afturhjólum í gang í torfærum.

GMC hannaði Hummer þannig að hann væri torfærubíll með einstökum eiginleikum eins og fjórhjólastýringu í „CrabWalk“ stillingu eða 2krabbastillingu“, sem gerir kleift að aka á ská í grófu landslagi; stálplötur utan um rafhlöðupakkann til varnar við erfiðar aðstæður í torfærum; og UltraVision, sem er með myndavélar að framan og aftan til að hjálpa til við að koma hjólum á rétta braut á slóða.

Mjög öflugar hlífðarplötur að neðan vernda rafhlöðurnar fyrir hnjaski og gera um leið botn bílsins alveg sléttan, nokkuð sem kæmi sér vel í jöklaferðum hér á landi.

„GMC Hummer EV er byltingarkenndur og gengur þvert á það sem greininni finnst um sem pallbíl,“ sagði Duncan Aldred, varaforseti Buick og GMC á heimsvísu, í yfirlýsingunni. „Sérsnið útgáfu 1 í torfærum mun gera fordæmalausa getu Hummer rafbílsins og núlllosun að mjög sérstökum kosti fyrir viðskiptavini“.

(Vefir GMC.com og Automotive News Europe – myndir GMC)

Fyrri grein

Nýir Volvo lögreglubílar frá Brimborg fyrir 200 milljónir

Næsta grein

Renault bætir fullkomnum tvinnvalkosti við Captur

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Fiat 500 fær aftur bensínvél

Fiat 500 fær aftur bensínvél

Höf: Jóhannes Reykdal
15/05/2025
0

Stellantis staðfestir framleiðslu á Fiat 500 tvinnbíl, byggðum á rafbílnum, í ítalskri verksmiðju Stellantis stefnir að því að hefja framleiðslu...

Alrafmagnaður Isuzu D-MAX 4×4 á markaði Evrópu í haust

Alrafmagnaður Isuzu D-MAX 4×4 á markaði Evrópu í haust

Höf: Pétur R. Pétursson
14/05/2025
0

Isuzu Motor Group hefur hafið fjöldaframleiðslu á rafdrifnum D-MAX með fjórhjóladrifi fyrir Evrópumarkað í verksmiðju sinni í Samron í Tælandi....

Volvo XC70 snýr aftur sem tengitvinnbíll með 199 km drægni á rafmagninu

Volvo XC70 snýr aftur sem tengitvinnbíll með 199 km drægni á rafmagninu

Höf: Jóhannes Reykdal
13/05/2025
0

Nýr Volvo sportjeppi er fyrst og fremst hannaður fyrir kínverska markaðinn en alþjóðleg kynning er í skoðun. Volvo er að...

Nýr Mercedes GLC EV verður kynntur á bílasýningunni í München

Nýr Mercedes GLC EV verður kynntur á bílasýningunni í München

Höf: Jóhannes Reykdal
10/05/2025
0

Mercedes-Benz mun kynna nýja rafknúna GLC sportjeppann á bílasýningunni í München í september, að því er forstjórinn Ola Kallenius segir....

Næsta grein
Renault bætir fullkomnum tvinnvalkosti við Captur

Renault bætir fullkomnum tvinnvalkosti við Captur

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

BYD Sealion 7 – fágaður lúxus og kraftmikið tæknibúnt

19/05/2025
Bílaheimurinn

Þjónustudagur Toyota

16/05/2025
Bílasýningar

Vígalegur 35″ Defender og fjallahjólhýsi á vorsýningu Land Rover á laugardag

16/05/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.