ESB stefnir að því að hafa 30 milljónir rafbíla á vegum árið 2030
Samkvæmt frétt á Bloomberg-fréttaveitunni mun framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leitast við að hafa að minnsta kosti 30 milljónir rafknúinna ökutækja á vegum svæðisins í lok áratugarins samkvæmt áætlun sem krefst þess að bílaiðnaðurinn flýti mjög fyrir umbreytingum.
Markmiðið fyrir núlllosandi bíla er að finna í drögum að stefnuskrá sem Bloomberg hefur undir höndum og áætlað er að birta í næstu viku.
Markmiðið er metnaðarfullt miðað við að um það bil 1,4 milljón ökutæki eru í akstri í Evrópu núna, samkvæmt BloombergNEF. Þar er því spáð að 28 milljón tengitvinnbílar og rafhlöðknúin ökutæki verði á vegunum árið 2028.
Í áætluninni eru mörkuð markmið fyrir víðtækari flutningageirann og kallað eftir því að háhraðaumferð járnbrauta tvöfaldist fyrir árið 2030 og áætlunarferðir milli borga undir 300 km verði kolefnislausar. Stórar flugvélar og skip án losunar ættu að vera „tilbúin á markað“ árið 2035, segir þar.
Þegar horft er lengra fram í tímann eru markmiðin að tvöfalda flutningaumferð með járnbrauum og þrefalda háhraðalestarumferð um miðja öldina. Búist er við að þessi áform leiði til lagafrumvarpa á næstu mánuðum.
Tillögurnar um flutningaiðnaðinn koma í kjölfar ráðagerða á milli aðildarríkja Evrópusambandsins vegna áætlunar um að herða markmið sambandsins varðandi það að draga úr losun árið 2030 í að minnsta kosti 55 prósent fyrir lok næsta áratugar frá því sem hún var um 1990.
Að hækka það markmið frá núverandi 40 prósentum er lykilatriði í „græna“ evrópska samningnum og krefst meiri fjármuna í orkuframleiðslu og innviði.
„Við verðum að gera alla flutningsmáta sjálfbæra“ til að uppfylla loftslagsmarkmið og gera evrópskum fyrirtækjum kleift að vera áfram leiðtogar iðnaðarins, segir í drögum að skjalinu og tekið fram að núll- og láglosunarvélar séu enn of lítill hluti ökutækjaflotans.
Framkvæmdastjórnin mun endurskoða CO2 staðla fyrir bíla og sendibíla fyrir júní 2021 og fyrir þungavörubíla árið 2022, sagði hún og kallaði eftir stefnu „að örva eftirspurn eftir núlllosandi ökutækjum.“
(Bloomberg og Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein