Dacia Sandero er mest seldi bíll Evrópu!
- Þessi mun ódýrari bíll frá Dacia seldist betur VW Golf í júlí!
- Ástæðan: breytingar á markaði og hugsanlega skortur á íhlutum!
Núna er staðan sú í Evrópu að sá bíll seldist best í álfunni í júlí er bíll sem við hér á landi þekkjum varla nema af afspurn!
Dacia Sandero var mest seldi bíll Evrópu í júlí og fór fram úr Volkswagen Golf sem hafnaði í öðru sæti eftir að hafa verið í efsta sæti um langa hríð.
Þetta er vegna þess að salan á Golf dróst saman og 6% aukning á sölu á Sandero frá júlí 2020. Salan á VW Golf lækkaði um 37% síðan 2020 og 39% samanborið við 2019 og seldust 19.425 bílar.
Skortur á framboði á heimsvísu á íhlutum kann að hafa eitthvað með það að gera, en það er líka áhugavert að horfa á aðrar breytingar innan Volkswagen fjölskyldunnar: VW T-Roc var í 5. í sölunni í Evrópu í júlí þrátt fyrir að hafa lækkað um 17% en hefðbundnari T-Cross var í 7. sæti eftir að hafa hækkað um 12%. Þarna er líka VW ID.3, rafmagnsbíll, svipaður Golf að stærð, sem var mest seldi rafbíllinn sem seldist í 5.433 eintökum í júlí.
VW Polo var fjórði mest seldi bíllinn þannig að það er ekki allt glötun og drungi fyrir bíla í álfunni, segja þeir hjá Autoblog sem voru að færa okkur þessar fréttir.
Fyrir utan Hyundai og Suzuki urðu öll helstu vörumerki fyrir lækkun á sölu í júlí, mörg þeirra fyrir verulegri.
Salan hjá Renault minnkaði, Jafnvel Dacia lækkaði, en minnkunin hjá þeim var um 19%, sem er minna en hjá öðrum. Dacia er hluti af Renault Group.
Endurhannaður
Sandero var nýlega endurhannaður og framboðið var útvíkkað og þar er nú að finna Stepway útgáfu með brettakanta, þakboga, hliðarklæðningar o.fl. Sandero er nú í þriðju kynslóð sinni síðan bílnum var upphaflega var hleypt af stokkunum.
Nú vakna spurningar um það hvort ekki sé kominn tími til að kynna þessa síðustu útgáfu af Sandero fyrir okkur hér heima á Íslandi?
(byggt á frétt á vef Autoblog – mynd Dacia)
Umræður um þessa grein