Porsche þrívíddarprentar stimpla ætlaða í 911 GT2 RS
Porsche í samstarfi við Mahle og Trumpf er að gera tilraunir með að þrívíddarprenta stimpla í 911 GT2 RS. Fyrstu prófanir lofa góðu.
Þrívíddarprentunin býður upp á ýmsar nýjungar sem voru óframkvæmanlegar með hefðbundnum framleiðsluaðferðum. Ein nýjungin er lokuð kæligöng nálægt stimpilkollinum. Það sparast efni án þess að styrkur tapist og hver stimpill verður 10% léttari. Með þessum stimplum næst hærri snúningshraði og fleiri hestöfl.
Stimplarnir eru framleiddir úr áldufti sem er brætt með leysigeislum. Það tekur 12 klukkutíma að framleiða einn stimpil svo þetta stefnir ekki í fjöldaframleiðslu.
Hér er hægt að lesa meira.
Sjón er sögu ríkari er sagt og skoðið endilega eftirfarandi myndbönd sem sýna framleiðsluna og prófanirnar mjög vel.
Það verður spennandi að fylgjast með hvernig þetta þróast.
Umræður um þessa grein