Open-source hugbúnaðarlausnir fyrir bílaiðnaðinn
VW leitar nú að aðilum til samstarfs við að framleiða Open-source hugbúnað frá grunni.
FRANKFURT – Volkswagen samsteypan leitar nú til samkeppnisaðila í bílaðinaði um sameiginlega þróun Open-source hugbúnaðar fyrir framtíðarbílinn. Þetta sagði Christian Senger framkvæmdastjóri hugbúnaðardeildar fyrirtækisins.
Í ljósi þróunar á sjálfkeyrandi bílum hefur bílaframleiðendum verið nánast ýtt út í að þróa stafrænar lausnir – myndavélar og stafræna skynjara og tengja þá við bremsukerfi og stýribúnað bifreiða sem innihalda mörg þúsund línur af forritunarkóða.
„Það er keppni í gangi um þróun hugbúnaðar í bíla,“ sagði Senger ennfremur en það eru nú þegar fyrirtæki ótengd bílaiðnaðinum sem eru búin að byggja upp samkeppni á þessum markaði.
Thomas Ulbrich stjórnarmaður hjá Volkswagen sagði í Mars að Tesla hefði 10 ára forskot á samkeppnina í þróun hugbúnaðar. Enda Tesla langt á undan í tækni og er í raun frekar tæknifyrirtæki en bílaframleiðandi.
„Í framtíðinni má reikna með færri hugbúnaðarframleiðendum sem þróa hugbúnað í bíla en bílaframleiðendur“,sagði Senger. „Þróun stýrikerfa í bíla okkar verður ekki eitthvað sem við komum til með að stjórna. Við munum skilgreina grunnþætti kerfanna og marka með því ákveðna staðla en fljótlega munum við sameina þau Open-source einingum. Þetta mun gera að verkum að tækifæri verða fyrir samvinnu í greininni“.
„Að koma á fót Open-source aðferðarfræði til þróunar með utanaðkomandi aðilum er alveg ný leið í okkar iðnaði,“ segir Senger. „Þetta er nánast óþekkt innan bílaðinaðarins en þetta er tækifæri og við erum á tímamótum.“
Í janúar kynnti Volkswagen Car.Software sem er sjálfstæður grunnur til forritunar fyrir bílaiðnaðinn og um leið samstarf við 3000 sérfræðinga á sviði forritunar og fjárframlagi til verksins upp á 7 milljónir evra. Árið 2025 er stefnt að því að um 10 þús manns vinni í grunninum.
„Við erum bara að skoða tækfiærin,” segir Senger og bætti við að Volkswagen vilji þróa nýtt stýrikerfi fyrir bílaiðnaðinn frekar en að byggja á margendurbættum forritunarlausnum héðan og þaðan úr bílaiðnaðinum.
„Það kemur þá í ljós hverjir vilja vera með,“ sagði Senger að lokum varðandi mögulega samstarfsaðila í stýrikerfapakkanum.
Umræður um þessa grein