Er sama hvernig bíl með tvöfaldri kúplingu er ekið?
Margir kannast við að það er ekki gott að standa mikið á fótstiginu fyrir kúplinguna og gefa í um leið í beinskiptum/handskiptum bíl. Þá endist kúplingin ekki vel. Hún fer að hitna og getur brunnið á frekar fáum kílómetrum ef þetta er gert.
En hvað þá með bíla sem eru með tvöfaldri kúplingu? Það eru til tvær útfærslur, votar kúplingar (svipaðar kúplingum í sjálfskiptingum og eru notaðar með DSG gírkassanum í VW) og þurrar kúplingar (tveir kúplingsdiskar sem eru líkir hefðbundnum kúplingsdiskum og finnast m.a. í Suzuki og Hyundai bílum). Það eru þurru kúplingarnar sem við erum að tala um hér.
En áður en lengra er haldið er rétt að útskýra að þegar stigið er á kúplingsfótstigið þá “slítur” kúplingin sambandinu á milli gírkassa og vélar en “tengir” þegar fóturinn er tekinn af fótstiginu. Þetta gerist sjálfkrafa í bílum með tvöfaldri kúplingu enda ekkert fótstig fyrir kúplingu í þeim bílum. Gírkassinn er tölvustýrður þannig að ef ökumaðurinn hemlar eða skiptir um gír með stönginni þá sér tölva um að slíta og tengja í staðinn fyrir ökumanninn.
Það er ekki sama hvernig bíl með tvöfaldri þurri kúplíngu er ekið. Hvernig á þá að aka þeim?
Svona áttu að aka slíkri bifreið:
- Láttu gírstöngina vera í D þegar þú stöðvar bílinn í gangi við t.d. gatnamót. Tölvan sér um að slíta og það verður ekkert slit á kúplingunum.
- Ef þú þarft að stoppa í brekku eða halla upp í móti, ekki taka fótinn af hemlunum. Ekki láta kúplingarnar halda við því þá hitna þær og slitna.
- Forðastu að láta bílinn rétt skríða áfram eins og í umferðarteppu eða ef bíllinn er að draga eitthvað annars “snuðar” önnur kúplingin og endist illa. Stattu á bremsunni til að slíta eða bíddu þangað til það er nægilegt bil í næsta bíl til að gefa inn svo full tenging náist.
- Ekki skipta í lægri gír þegar þú ert að gefa inn og ekki skipta í hærri gír þegar þú ert að hemla. Þetta veldur pirrandi töfum í gírskiptingum því tölvan reiknar með því að næsta skipting eigi að vera í hærri gír þegar þú gefur inn en í lægri gír þegar þú hemlar.
- Þegar þú tekur af stað þá máttu stíga bæði á hemla og inngjöf á sama tíma en slepptu hemlunum strax og þú finnur að bíllinn vill fara af stað. Þá tengir kúplingin fljótt og það verður ekkert slit.
Í stuttu máli sagt þá slíta kúplingarnar þegar hemlað er en tengja þegar gefið er inn. Ef bíllinn er í gangi og það er ekki stigið á fótstigin fyrir hemlana né inngjöfina á litlum hraða þá getur önnur kúplingin snuðað.
Reyndu að finna út hvort bíllinn þinn er með svona tvöfaldri kúplingu og aktu í samræmi við það. Þá munu þær endast vel.
Umræður um þessa grein