Bílar BMW munu nota nýjan hugbúnað til að „finna“ fyrir ástandi vega
TEL AVIV – Hugbúnaður frá fyrirtækinu Tactile Mobility í Ísrael, en hugbúnaðurinn byggir á snertifærni, verður felldur inn í næstu kynslóð bifreiða BMW frá 2021.
Samstarfið mun útbúa ökutækin með getu til að greina eiginleika vegsyfirborðs undir dekkjunum, sem gerir kleift að greina ástand á yfirborði vega.
Tactile Mobility, en nafn fyrirtækisins mætti þýða sem “áþreifanlegur hreyfanleiki” – þróar hugbúnað sem notar skynjara ökutækisins, þar á meðal hjólhraða, hjólhalla, snúningshraða og stöðu á gír til að hjálpa snjöllum og sjálfakandi ökutækjum að “finna fyrir” akstrinum og vegunum.
?
Í október sagðist Tactile Mobility hafa tryggt sér 9 milljón dollara fjármögnun frá hópi fjárfesta, þar á meðal Porsche.
Í maí sagðist sportbílaframleiðandinn ætla að nota tækni Tactile Mobility í framtíðarbifreiðum sínum.
Samstarf BMW og Tactile Mobility hófst í gegnum “BMW Startup Garage”, sem er eining viðskiptavina BMW samstæðunnar.
(Reuters)
Umræður um þessa grein