Bilanagreiningar og bílaráðgjöf

Loga aðvörunarljós í mælaborðinu, verður bíllinn oft rafmagnslaus, eru öryggi að springa, þarftu að ná útvarpinu úr, fer bíllinn ekki í gang, þarftu að lofttæma ABS hemla eða byrjaðir þú að gera við bílinn en ert núna stopp og kemst ekkert áfram?
Er bíllinn að minna þig á að fara í þjónustuskoðun eða smurþjónustu þrátt fyrir að það var búið að þjónusta bíllinn?

Þarftu aðstoð núna og getur ekki beðið? Bílagreining gæti líklega bjargað þér ef svarið er já við einhverju af þessu. En Bílagreining er þjónusta fyrir bíleigendur, bílaverkstæði og önnur fyrirtæki á Suðurnesjum. Nánar tiltekið í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ.
Hvernig virkar þessi þjónusta?
Þú hefur samband, lætur vita hvað er að og gefur helst upp bílnúmerið þá er hægt að forvinna verkefnið. Bifvélavirkinn fer þangað sem bíllinn er en yfirleitt ekki öfugt og skoðar málið.
Ef verkefnið krefst þess að vinnan fari fram innanhúss þá er hægt að koma bílnum til Bílagreiningar ef ekkert húsnæði er tiltækt.

Hvað getur Bílagreining gert?
Næstum allt sem viðkemur rafmagnsbilunum og tölvum í bílum en Bílagreining sérhæfir sig í erfiðum rafmagnsbilunum sem aðrir geta ekki sinnt eða vilja helst ekki sinna.
Bílagreining getur lesið flestar tölvur í flestum bíltegundum þar með talið Tesla. Sérstaklega ef bílarnir eru með EOBD eða OBD2 bilanagreiningatengi. Þannig eru flestir 12V fólksbílar, jeppar, pallbílar og smærri sendibílar sem hafa verið framleiddir síðustu tvo áratugi.

Prófað hvort EOBD eða OBD2 tengið í bílnum virkar eða er rétt tengt.
Fundið út úr samskiptavandamálum milli tölva í bílum. En tölvur í flestum eða öllum bílum „tala“ saman yfir netkerfi sem eru kölluð BUS t.d. CAN BUS.
Stundum klikka þessi samskipti og þá komast mikilvægar upplýsingar ekki til skila sem getur valdið því að bíllinn virkar ekki sem skyldi eða verður jafnvel óökufær.

Fundið út úr rafmagnsvandamálum eins og útleiðslu sem getur valdið því að bíllinn verður oft rafmagnslaus eða er alltaf að sprengja öryggi.
Prófað, mælt og hugsanlega gert við hluti úr bílum eins og rafgeyma, tölvur, startara, rafala og margt fleira. En það er annað hvort hægt að koma þessum hlutum til Bílagreiningar eða bifvélavirkinn fer þangað sem hlutirnir eru.
Ertu t.d. með tölvu úr bíl og þú þarft að komast að því hvort hún er í lagi? Bílagreining getur tékkað á því og líklega komist að því hvort hún passi í bílinn sem hún á að fara í.
Veitt aðstoð og ráðgjöf við allar bílaviðgerðir ekki bara rafmagnsviðgerðir. Komið og aðstoðað ef það vantar auka hendur í verkið eða vantar viðbótarþekkingu og reynslu. T.d. hjálpað við að losa fasta eða brotna bolta.
Losað útvörp, mælaborð o.fl. frá en stundum þarf sérverkfæri ef það þarf að skipta um upprunaleg (original) útvörp, sem dæmi. Eins hjálpað við að fjarlægja innréttingar t.d. hurðaspjöld og margt fleira en Bílagreining á verkfærin sem þarf í þess konar verk.
Endurstillt, sett í gang, forritað og núllstillt allt í allt 15 mismunandi atriði eins og lofttæmingu á ABS hemlum og miðjustillt stýri (steering angle).

Verð
Bílagreining er með einfaldan verðlista og á honum eru bara tvö atriði ef frá er talið efni sem gæti þurft í viðgerðir:
Tímaverð. Unninn tími.
Grunngreining og yfirferð. Innifalið í því er álagsprófun rafgeyma, startpróf og hleðslupróf. Tékkað á mótorolíu, kælivökva og hemlavökva. Drifreim (viftureim) skoðuð, vélarúm skoðað eins og hægt er með tilliti til vökvaleka, ástands rafkerfis o.fl.. Hlustað eftir óeðlilegum hljóðum þegar vélin er í gangi.
Tölvulestur og „heilsufars“ skýrsla ef eitthvað finnst að. Þetta er yfirleitt óþarft fyrir 100% rafbíla en ágætt fyrir alla aðra bíla t.d. áður en lagt er af stað í ferðalag.
Það er engin ástæða til að bíða eftir því að eitthvað bili og/eða aðvörunarljós kvikni í mælaborðinu. Oft er hægt að sjá með einhverjum fyrirvara hvort eitthvað er að fara að bila eða skemmast. Þannig er hægt að spara sér tíma og peninga.
Verð á þjónustunni má finna á Facebook síðu Bílagreiningar og þar verður það uppfært eða þú hefur samband og spyrð.
Bílagreining reynir alltaf að stilla verðinu í hóf og bjóða góða þjónustu.
Undirritaður er með mjög mikla reynslu af bílaviðgerðum og tækniráðgjöf vegna bíla.
Jón Helgi Þórisson
Bifvélavirki
https://www.facebook.com/JonBilagreining
Umræður um þessa grein