Mika Häkkinen er kannski ekki „gamall“ en hann býr yfir reynslu eins og „gamall vitur karl“. Þess vegna hugsa ég að ungir ökumenn taki mikið mark á Mika „gamla“ Häkkinen, í þau fáu skipti sem hann tjáir sig opinberlega um gang Formúlu 1.
Söguleg keppni um helgina
Það eru margir á því að keppnin í Sádi-Arabíu um síðustu helgi hafi verið með eindæmum spennandi. Það fannst okkar manni, Finnanum fljúgandi, líka. Eins og títt er um allsgáða Finna þá talar Häkkinen ekki af sér. Hann hefur hugsað þetta fram og aftur; farið í sauna og ísbað til skiptis og svo, í gær; þá var niðurstaðan komin. Og Finninn þarf ekki einu sinni að tala.
Hann skrifar:
„Keppnin síðasta sunnudag var bæði spennandi og umdeilanleg á svo margan hátt. En í keppninni varð það alveg ljóst að Lewis Hamiton og Max Verstappen eru í miðri baráttu og sú barátta er ein sú rosalegasta í sögu Formúlu 1,“ skrifar Häkkinen.
„Sú staðreynd er stórkostleg að þessir strákar séu komnir til Abu Dhabi hnífjafnir að stigum. Eftir 21 erfiða keppni, með hæðum, lægðum og ölllu sem fylgir, þá verður það þessi keppni sem því ræður hver öðlast heimsmeistarartitilinn.“
Óttablandin spenna í loftinu
Það hefur ekki farið framhjá neinum sem lætur sig málið varða að undir niðri í akstursíþróttaheiminum ólgar hræðsla og það er jafnvel kvíði í mörgum vegna þess sem liggur í loftinu: Ætlar einhver að beita brögðum? Þessi „einhver“ er í flestum tilvikum Max Verstappen.
Af hverju hann? Það hlýtur að stafa af því að flestir telja sig þekkja keppniseðli og stíl Lewis Hamiltons, eftir öll þessi ár. Hann hefur sjö sinnum unnið titilinn en Max er á stað sem hann hefur aldrei fyrr verið. Í margra augum er hann, eðli máls samkvæmt, ólíkindatól. Það sem við þekkjum ekki, höfum við tilhneigingu til að óttast eða taka með fyrirvara. Óíþróttamannsleg hegðun skýtur upp kollinum þegar mikið liggur við og álagið er nánast óbærilegt.
Nú vindum við okkur aftur í vísdómsorð Mika „gamla“ Häkkinen og því sem hann birti á blogginu sínu í gær.
„Það [að síðasta keppni skeri úr um sigurvegarann] er dásamlegt í Formúlu 1 þegar staðan er svona, en ég vil sjá titilinn ákvarðast á grundvelli sannrar og drengilegrar keppni. Með öðrum orðum að hraðasti ökumaðurinn á hraðasta bílnum vinni keppnina á sunnudaginn. Ég vil ekki að refsingar skeri úr um það hver verði heimsmeistarinn – það væri skammarlegt fyrir Formúlu 1 og mikilvægasta fólkið í þessu öllu saman; áhorfendurna.“
Þarna höfum við það „svart á hvítu“ kæru lesendur: Við erum mikilvægasta fólkið! Nei, svona að öllu sprelli slepptu þá myndi Formúla 1 líða undir lok býsna fljótt ef áhorfendur misstu áhugann. Glati Formúla 1 virðingunni og trúverðugleika sínum þá er allt eins hægt að drepa á bílnum og bakka inn í skúr. Og læsa innanfrá og jafnvel gleypa lykilinn.
Barátta og herkænska en ekki stríð
Gefum Häkkinen orðið aftur: „Þó svo að við notum orð eins og „barátta“ og að „berjast“ um þann hita og ákefð sem sem ríkir á milli þeirra Max og Lewis, milli Red Bull Racing og Mercedes, þá er þetta ekki stríð.
Við viljum ekki að það komi til árekstra sem setja alla í aukna hættu. Formúla 1 er nógu hættuleg fyrir.“
Því næst rekur Häkkinen atburðarás keppninnar í Jeddah og ég vísa á hlekkinn hér að ofan fyrir þá sem vilja lesa alla bloggfærsluna.
Án þess að fara ítarlega ofan í saumana á því sem Häkkinen skrifar um framvindu keppninnar síðasta sunnudag þá langar mig að staldra við eitt atriði. Eða öllu heldur: Einn tiltekinn hring. Hring 37.
Þegar þeir Max og Lewis fóru báðir út fyrir braut í fyrstu beygju 37. hrings og Max fékk refsingu. Lítum á hvað Häkkinen segir um nákvæmlega þetta:
„Það ætti aldrei að umbuna keppanda fyrir að aka andstæðingi [þvinga] út af brautinni. Þetta minnir okkur vissulega á atvikið í Brasilíu þegar Max og Lewis fóru á svipaðan hátt út fyrir braut – en hvorugur fékk refsingu.
Málið var leyst með því að biðja Max að hleypa Lewis fram úr. Þegar maður þarf að hleypa bíl fram úr er aðeins ein örugg leið til þess: Að færa sig greinilega til hliðar og létta rólega á gjöfinni þannig að eðlilegur hraði gefi andstæðingnum færi á að komast fram úr.
Það sem gerðist í Jeddah var hættulegt. Báðir ökumennirnir voru meðvitaðir um að framundan væri DRS-svæðið og hvorugur vildi verða fyrri inn á það svæði því það myndi gefa hinum ökumanninum tækifæri til að taka fram úr á næsta beina kafla.
Við vitum líka að Max hafði fengið þau skilaboð að hann ætti að hleypa Lewis fram úr, en Lewis hafði engar upplýsingar fengið og vissi því eitt andartak ekki hvaðan á sig stóð veðrið.
Ég held að bæði þurfi liðin og FIA að rýna aðeins í verkferlana hjá sér og hugsanlega líka að skoða tæknibúnaðinn sem er notaður til að koma skilaboðum til bílstjóranna.
Þegar ég skoða það sem gerðist næst, þá hef ég enga trú á að Mak hafi verið að „bremsutesta“ [e. brake testing] Lewis – það er að segja, að hann hafi ætlað sér að láta hann keyra aftan á sig, sem hefði hæglega getað sett báða úr leik,“ útskýrir Häkkinen.
„Þvert á móti held ég að hann hafi verið að reyna að neyða Lewis til að taka fram úr þarna. En það hvernig hann hægði á, og afstaða bílsins á brautinni, var sannarlega vandamál. FIA hefur gefið út að þegar Max bremsaði varð til togkraftur upp á 2.4G,“ skrifar hann.
Í framhaldi af því tekur hann dæmi til útskýringar: „Þegar bremsað er af öllu afli á venjulegum sportbíl með ABS bremsum, þá verður til togkraftur sem nemur 1.2G. Þetta var nánast tvisvar sinnum það, og við getum líka séð að Max hægir á og fer úr áttunda gír í þann þriðja.
Hver svo sem ástæðan kann að vera þá er ljóst að þetta var ljótur leikur og hárrétt hjá FIA að bæta við refsingu að keppni lokinni. Við getum karpað fram og til baka um vægi refsingarinnar – og álitið að refsingin hefði engin áhrif haft á úrslit keppninnar – en hvað sem því líður eru skilaboðin skýr:
Glæfraakstur hefur refsingu í för með sér. Og sjái FIA ítrekuð brot af sama tagi í Abu Dhabi þá geri ég fastlega ráð fyrir að refsingin verði þung og að refsað verði tafarlaust,“ skrifar Häkkinen og nú skilur maður af hverju hann tók sér nokkra daga í að melta þetta. Hann er greinilega ekki karlinn sem hamrar eitthvað á lyklaborðið, ýtir á enter og segir svo bara „úps“!
Mika Häkkinen veit ekki, frekar en svo margir aðrir, hvernig í veröldinni bíllinn hans Lewis komst eins heill frá þessum árekstri og raun ber vitni. En jú, þessi Mercedes framvængur er greinilega ekkert hrökkbrauð.
„Meira að segja tókst Lewis, með skemmda endaplötu á framvængnum, að ná hraðasta hring keppninnar og vinna sjálfa keppnina,“ skrifar hann en lýkur færslunni með þessum orðum:
„Ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að maður eigi að keppa með jákvæðum huga en ekki neikvæðum. Að verða heimsmeistari á eingöngu að snúast um hraða, nákvæmni, færni og það að sanna að maður geti unnið hinn ökumanninn í keppninni – íþróttakeppninni.
Þetta er það sem ég vil sjá á sunnudaginn, og ég veit að þetta er líka það sem FIA, Formúla 1 og áhorfendur vilja sjá.“
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein