Sir Frank Williams lést í dag, 79 ára að aldri. Williams stofnaði Williams Grand Prix Engineering liðið í Formúlu 1 árið 1966 og var sjálfur liðsstjóri þess frá 1977 til 2012.
Undir hans stjórn vann liðið níu sinnum titil bílasmiða og ökumannstitilinn sjö sinnum.
Áhugi Williams á akstursíþróttum kviknaði snemma og keppti hann sjálfur í kappaksti á sjöunda áratugnum. Honum varð ljóst að þar sem hann var klókur kaupsýslumaður færi vel á því að hann sæi um liðsstjórn og rekstur kappakstursliða. Aðrir sáu um að aka kappakstursbílunum.
Willams var bundinn við hjólastól frá því hann lenti í bílslysi árið 1986. Slysið var alvarlegt og lamaðist Williams fyrir neðan mitti.
Þann 26. nóvember sl. var Williams lagður inn á sjúkrahús og andaðist í morgun, 28. nóvember. Í tilkynningu frá fjölskyldu hans kemur fram að hann hafi verið í faðmi sinna nánustu þegar hann kvaddi. Dánarorsök er ekki gefinu upp en hér má lesa tilkynningu fjölskyldunnar.
Ómögulegt er að gera lífshlaupi Sir Franks Williams skil í stuttu máli og látum við þessi fátæklegu orð um merkilegan hugsjónarmann duga að sinni.
Akstursíþróttaheimurinn minnist hans í dag og það gerum við líka. Leyfum þessu dásamlega myndbandi úr „bíltúr“ þeirra Hamiltons og Williams árið 2019 að fylgja.
Umræður um þessa grein