INEOS, framleiðandi Grenadier-jeppans, teflir nú fram ökumanni úr Formúlu 1 í auglýsingaherferð. Finninn Valtteri Bottas, sem ekur fyrir Mercedes, sést í splunkunýju myndbandi aka eftir fáförnum vegarslóða á INEOS Grenadier-jeppanum.
Margir bíða spenntir eftir þessum áhugaverða og hörkulega jeppa, en hann kemur á markað í Evrópu á næsta ári, 2022.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfa8251256682/6183cb2849af7391fc762c08_Grenadier.jpg)
Það verður að segjast eins og er að það er frumlegt að fá Formúluökumann til að auglýsa jeppann og sannarlega er óvenjulegt að sjá Bottas aka með gassagangi í drullu og yfir lækjarsprænur. Í það minnsta fyrir þau okkar sem erum vön að sjá hann í allt öðru umhverfi!
Umræður um þessa grein