Það er sannarlega af mörgu að taka eftir daginn en best er að byrja hreinlega á sjálfum úrslitunum:
Lewis Hamilton (Mercedes) vann keppnina sem fram fór í Katar í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er þar og því margt „fyrst“, „best“ og „mest“ á brautinni, sem er auðvitað bara gaman!
Max Verstappen (Red Bull) varð í 2. sæti og Fernando Alonso (Alpine) í því þriðja.
Magnað alls konar
- Þetta er 102. sigur Hamiltons í Formúlu eitt og hefur enginn unnið fleiri keppni en þessi frábæri ökumaður.
- Alonso er loks aftur á verðlaunapalli eftir sjö ára „bið“.
- Níuhrundraðasta keppni McLaren-liðsins í Formúlu 1 frá upphafi.
- Keppnin í dag er sú 1.055. í Formúlu 1.
- Aldrei nokkurn tíma áður hefur keppni í Formúlu 1 farið fram 21. nóvember
- Hamilton varð í dag sá fyrsti í sögunni sem unnið hefur á 30 mismunandi brautum í Formúlu 1.
Smá um Losail brautina í Katar
- Losail International brautin var upphaflega lögð fyrir mótorhjólakeppnir.
- Rétt rúmt ár tók að búa brautina til.
- Brautin var fyrst notuð fyrir MOTOGP keppni árið 2004, eða fyrir 17 árum síðan.
- Katar hefur undirritað tíu ára samning um að keppt verði á brautinni og tekur samkomulagið gildi árið 2023.
- Nico Hülkenberg og Sergio Perez hafa keppt á þessari braut áður en það var árið 2009 í GP2 Asia Series.
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein