Munum eftir þurrkublöðunum
Gott ráð að endurnýja þurrkublöðin áður en svartasta skammdegið gengur í garð
Eitt mikilvægasta öryggistækið á bílnum eru þurrkublöðin. Núna þegar veður gerast misjöfn er mjög mikilvægt að þau séu í lagi.
Þurrkublöðin eru oft orðin slitin eftir notkunina yfir sumartímann. Þurrkublöðin harðna í hita og sólarljósi og hörð blöðin eiga það til að „skripla“ hreinlega á rúðunni þegar kveikt er á rúðuþurrkunum.
Það eru til margar gerðir þurrkublaða, en þeim sem þetta skrifar hefur reynst best að vera með „heil“ blöð, sérstaklega að vetrarlagi.
Eldri gerðir þurrkublaða voru úr gúmmí sem haldið var af málmboga með klemmum sem héldu utan um sjálft þurrkublaðið.
Hægt er að fá svona þurrkublöð með „kápu“ utan um málmarminn, en í dag eru hins vegar komin þurrkublöð þar sem sjálft blaðið er burðurinn og engin málmgrind lengur til staðar. Þessi gerð af þurrkublöðum hentar sérlega vel að vetrarlagi því þau safna á sig mun minni snjó og ísingu.
Gott að nota vatnsfráhrindandi vörn á framrúðuna
Til viðbótar við góð þurrkublöð getur verið frábær viðbót að nota vatnsfráhrindandi varnarefni sem er borið á framrúðuna.
Það eru margvísleg slík efni á markaðnum sem hægt er að nálgast á betri bensínstöðvum í í bílavörubúðum, en öll hafa þau sama tilgang fenginni reynslu okkar að slík efni gefa allt að þriggja mánaða vörn, þannig að rúðuþurrkurnar eru nánast óþarfar í miðlungs rigningu, því droparnir renna af og skerða ekki útsýnið.
Umræður um þessa grein