Ertu áhættufíkill?
Taktu þér þá far með einum af fjölmörgum langferðabílum Indlands. Á YouTube kennir ýmissa grasa. Allt frá því hvernig á að kreista bólu á eyrnasnepli til óhugnanlegra myndbanda af hryllilegum umferðarslysum – og allt þar á milli. Það góða er að þú ræður hvað þú smellir á til að horfa.
Um daginn var ég að flækjast um á YouTube og fékk þá tillögu frá veitunni um að horfa á meðfylgjandi myndband. Myndband þetta sýnir glæfraakstur á langferðabíl sem ekur á milli staða á Indlandi samkvæmt nokkuð stífri áætlun, vægast sagt.
Fáránlega algengt
Og þetta er ekki eina myndbandið – þetta virðist vera „venja” í þessum heimshluta – að aka eins og enginn sé morgundagurinn.
Bílflautan er mikið notuð í akstri og virðist ómissandi.
Til að gera þetta nú aðeins fróðlegt í leiðinni eru hér tölur – reyndar frá 2019. Indland er í fyrsta sæti ef svo má segja hvað varðar banaslys í umferðinni í heiminum. Á vegum Indlands eru banaslys um 11% af öllum slíkum í veröldinni. Á því herrans ári 2019 varð um hálf milljón umferðarslysa í landinu og skráð dauðsföll voru rúmlega 150 þúsund.
Hér er myndband sem sýnir aksturslagið á einum af þúsundum langferðabíla sem aka um vegi Indlands á degi hverjum – og valda án efa einhverjum af þeim slysum sem verða á vegum landsins.
Umræður um þessa grein