Brimborg kynnir glænýjan, langdrægan Peugeot e-Traveller 9 sæta 100% rafbíl með 75 kWh drifrafhlöðu með allt að 330 km drægni á 100% hreinu rafmagni. Peugeot e-Traveller er fáanlegur 9 sæta í Business eða Allure útfærslu í tveimur lengdum með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.
Forsalan á nýja 9 sæta Peugeot e-Traveller rafbíl er hafin í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg.
ALLT AÐ 330 KM DRÆGNI Á 100% HREINU RAFMAGNI
Peugeot e-Traveller er 100% hreinn rafbíll með 75 kWh drifrafhlöðu og er drægni bílsins skv. WLTP mælingu framúrskarandi eða allt að 330 km. Peugeot e-Traveller er fáanlegur með 7,4 kW eða 11 kW innbyggðri hleðslustýringu sem gerir þér kleift að fullhlaða tóma drifrafhlöðuna á 7,5 klst. í heimahleðslustöð eða í vinnu.
48 MÍNÚTUR Í 80% DRÆGNI Í 100 KW HRAÐHLEÐSLUSTÖÐ
Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Peugeot e-Traveller rafbíl heima,í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða á 7,5-11,20 klst í öflugri heimahleðslustöð og aðeins tekur frá 48 mínútum að hlaða tóma drifrafhlöðuna í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð.
FJARSTÝRÐ FORHITUN TRYGGIR ALLTAF HEITAN BÍL
Peugeot e-Traveller rafbíll er með snjallmiðstöð með tímastillingu og forhitun sem tryggir að bíll er heitur og þægilegur þegar lagt er af stað. Einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyPeugeot® appinu ásamt því að tímastilla forhitarann.
BAKKMYNDAVÉL OG BLINDAPUNKTSAÐSVÖRUN
Bakkmyndavél og blindpunktsaðvörun eru hluti af ríkulegum staðal- og öryggisbúnaði. Bakkmyndavélin sýnir svæðið næst bakhluta bílsins og sýnir fjarlægðir með nákvæmum línum ásamt því hvernig aksturstefna bílsins er með tilliti til stöðu stýrisins. Nálægðarskynjarar að framan og aftan gefa hljóðmerki til ökumanns og auka þannig enn á öryggið. Blindpunktsaðvörunin lætur ökumann vita ef bíll er í blindapunktinum með hljóðmerki og litlum ljósmerkjum í hliðarspeglunum.
9 SÆTA RAFBÍLL
Peugeot e-Traveller er fáanlegur 9 sæta í Business útfærslu þar sem bílstjórasæti og tveggja manna sæti eru í fremstu röð og þrjú sæti í miðju og í öftustu röð. Peugeot e-Traveller er einnig fáanlegur með VIP sætaútfærslu.
TVÆR LENGDIR OG GÓÐ VEGHÆÐ
Peugeot e-Traveller er fáanlegur í tveimur lengdum L2 og L3 í bæði Business og Allure útfærslu. Peugeot e-Traveller er með góða veghæð og háa sætisstöðu svo það er einstaklega þægilegt fyrir bæði ökumann og farþegar að ganga um hann. Innra rýmið er fullkomið; nútímalegt og notendavænt þar sem nýjasta kynslóð af i-Cockpit innréttingu sem hefur verið sérhönnuð fyrir rafbíl. Notagildi og þægindi fyrir ökumann eru höfð að leiðarljósi þar sem öll stjórntæki, mælar og skjáir eru í sjónlínu ökumanns.
GÆÐI PEUGEOT ERU EINSTÖK ENDA Í BOÐI MEÐ VÍÐTÆRKI 7 ÁRA ÁBYRGÐ Á BÍLNUM OG 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU
Gæði Peugeot eru einstök enda í boði með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og sérstakri 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda hvað varðar þjónustuskoðanir.
SALAN ER HAFIN Í VEFSÝNINGARSAL BRIMBORGAR
Brimborg hefur hafið forsölu á glænýjum Peugeot e-Traveller í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg.
Í Vefsýningarsal er að finna alla Peugeot e-Traveller 100% rafbíla í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar.
Peugeot e-Traveller kostar frá 7.490.000 kr. og er fáanlegur í tveimur lengdum; L2 og L3
Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. Söluráðgjafar Peugeot aðstoða viðskiptavini við að setja saman réttu útfærsluna.
Nánari upplýsingar um glænýjan Peugeot e-Traveller 9 sæta rafbíl er að finna á vef Peugeot á Íslandi peugeotisland.is eða hjá sölustjóra Peugeot á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur eða í síma 5157802.
Umræður um þessa grein