Leiðandi samstarfsaðilar ganga til liðs við Polestar 0 verkefnið
Vitesco, Stora Enso og sex nýir samstarfsaðilar ganga til liðs við Polestar 0 verkefnið
- Átta nýir alþjóðlega leiðandi samstarfsaðilar ganga til liðs við Polestar 0 verkefnið við sköpun á raunverulega loftslagshlutlausum bíl fyrir árið 2030
- Nýir samstarfsaðilar munu leggja sitt af mörkum til rannsókna á sviðum eins og lífrænum efnum, efna- og álferlum, rafeindatækni og yfirborðsefnum í innra rými
- Áfram verður haldið við leit að fleiri samstarfsaðilum á sviðum hráefna, lífrænna efna, fjölliða, rafmagnsíhluta, eðallofttegunda og annarra grunnefna
GAUTABORG, SVÍÞJÓÐ – 1. febrúar 2023. Polestar (Nasdaq: PSNY), sænskur framleiðandi hágæða rafbíla með afburða aksturseiginleika, hefur skráð átta samstarfsaðila til viðbótar við Polestar 0 verkefnið, markmið fyrirtækisins að búa til raunverulega loftslagshlutlausan bíl fyrir árið 2030.
Nýir samstarfsaðilar í verkefninu eru meðal annars Vitesco Technologies, Schloetter, Autoneum, Stora Enso, TMG Automotive, Gränges, Borgstena og Stena Aluminium. Þeir koma frá löndum eins og Þýskalandi, Sviss, Portúgal, Finnlandi og Svíþjóð og starfa á sviði rafmagnsstraumbreyta (inverters), rafhúðunar, efna fyrir yfirbyggingu og innréttinga, endurnýjanlegra lausna í umbúðum, lífefna og viðarsmíði, húðunar og vefnaðarvöru, flatvalsaðs áls, prjónaðs og ofins efnis og endurunnins áls.
Polestar 0 verkefninu var hleypt af stokkunum árið 2021 í þeirri trú að bílaiðnaðurinn þurfi á algjörri endurstillingu að halda.
Þó orkuskipti yfir í rafbíla útiloki útblástur, viðurkennir Polestar nauðsyn þess að bregðast brýnt við losun sem stafar af framleiðslu.
Metnaðarfullt markmið Polestar 0 verkefnisins er að útrýma öllum uppsprettum CO2 í allri aðfangakeðjunni, allt frá hráefnisvinnslu til efnis- og ökutækjaframleiðslu, afhendingu og við endalok líftíma, án þess að treysta á villandi kolefnisjöfnunarkerfi.
Hans Pehrson, yfirmaður Polestar 0 verkefnisins, segir: „Sannfæring mín um árangur Polestar 0 verkefnisins er staðfest í hvert skipti sem við hittum nýja samstarfsaðila.
Það er ljóst að möguleikar og tækifæri leynast um allan heim.
Að ná því sem virðist ómögulegt er aldrei eins manns verkefni.
Það er aðeins með sameiginlegum aðgerðum sem við getum hafið byltingu sem sannarlega skiptir sköpum og skapa þannig umbreytingarlausnir sem hafa áhrif út fyrir bílaiðnaðinn.“
Rannsóknir á grunnefnum eru grundvallaratriði, sem gerir lífræna uppsprettu og námuvinnslu, fylgt eftir með hreinsun og manngerðum efnum, og lykill að velgengni.
Það er þörf á fleiri samstarfsaðilum, bæði frá fræðasviðum og frá atvinnulífinu, og leitin heldur áfram að samstarfsaðilum um hráefni, lífræn efni, fjölliður, rafmagnsíhluti, eðallofttegundir og aðra grunnefnisframleiðslu.
Með það markmið að afhenda raunverulega loftslagshlutlausan bíl árið 2030 er mjög brýnt að leysa þá þætti sem upp á vantar.
(fréttatilkynning frá Brimborg / Polestar)
Umræður um þessa grein