Gæðingadagar hjá Ford 18. – 25. mars í Reykjavík og á Akureyri
Gæðingadagar verða haldnir hjá Ford á Íslandi vikuna 18. – 25. mars.
Tveir flottir gæðingar frá Ford verða í brennidepli á sýningunni en hún er haldin bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Um er að ræða nýjar útfærslur af Ford Mustang Mach-E og goðsögnina Ford Bronco.
Ford Mustang Mach-E rafbíll
Einn gæðingurinn sem verður sýndur er öflugi rafbíllinn Ford Mustang Mach-E. Hann er heldur betur verðugur Mustang-nafninu, enda með fádæmum kraftmikill og fallegur.
Ford Mustang Mach-E er fjórhjóladrifinn, hefur vakið athygli fyrir framúrskarandi frammistöðu í íslenskum aðstæðum og að vera einstaklega vel byggður í alla staði.
Ford Mustang Mach-E er nú fáanlegur í nýjum og ótrúlega flottum litum, auk þess sem staðalbúnaður í honum er bitastæðari en í fyrri útfærslum.
Öflugasta útgáfan af Ford Mustang Mach-E, GT, verður einnig í salnum í Reykjavík og segja má að sjón sé sögu ríkari!
Ford Bronco
Villihesturinn Ford Bronco Wildtrak verður einnig sýndur og hægt verður að skoða síðasta lausa eintakið af fágætum Ford Bronco Raptor, sem mun sennilega ekki koma aftur til landsins.
Gríðarlega flottur aukahlutapakki fylgir með öllum seldum Ford Bronco út mars.
Pakkinn inniheldur aurhlífar að framan og aftan, skottmottu, langboga með þverbogum og dráttarbeisli. Heildarverðmæti pakkans er 774.000 kr.
Óljóst er hvort eða hvenær fleiri Ford Bronco koma til Brimborgar, svo nú er besti tíminn til að tryggja sér eintak.
Örfáir bílar eru enn á lausu og við mælum sterklega með reynsluakstri á þessum einstaka jeppa sem er fær í flestan sjó án þess að þurfa neinar breytingar.
(fréttatilkynning frá Brimborg)
Umræður um þessa grein