Camry Hybrid
Á morgun, laugardaginn 11. maí verður nýr Camry Hybrid frumsýndur hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi.
Sýningin stendur frá kl. 12 – 16 og þá verður hægt að reynsluaka þessum skemmtilega fólksbíl sem er nú að koma aftur í sölu í Evrópu en hann hefur ekki fengist hér á landi síðan 2004.
Þetta er 8. kynslóð af Camry sem fyrst kom á markað árið 1982. Vinsældir Camry hafa verið miklar og og er hann mest seldi bíll í heimi i sínum stærðarflokki. 700.000 eintök seljast árlega í þeim 100 löndum þar sem hann er á boðstólum. Það jafngildir 35 góðum söluárum í bílum á Íslandi.
Camry Hybrid er veglegur Sedanbíll sem hefur mikið pláss fyrir farþega og farangur og fæst í þremur útfærslum, Live+, Active og Luxury. Allar útfærslur eru með 2,5 l vél auk Hybridbúnaðar. Camry Hybrid er 218 hestöfl og verð er frá frá 6.550.000 kr
?
Umræður um þessa grein