BL kynnir MG5 Electric Station Wagon
– Fyrsti rafbíllinn á markaðnum í skutútfærslu
BL kynnir á laugardaginn kemur, 21. maí, fyrsta 100% rafbílinn á markaðnum í skutútfærslu þegar boðið verður til sýningar og reynsluaksturs á fjölskyldubílnum MG5 Station Wagon milli kl. 12 og 16 við Sævarhöfða.
Landsmenn hafa tekið MG merkinu opnum örmum frá því að það var fyrst kynnt á ný til leiks eftir langt hlé við frumsýningu rafknúna jepplingsins MG ZS EV í byrjun júní árið 2020.
Síðan þá hafa tvær nýjar gerðir komið á markað, 2021 tengiltvinnbíllinn MG EHS og svo rafbílinn MG Marvel R sem kynntur var hjá BL í lok síðasta árs.
Gott rými fyrir farþega og farangur
MG5 Electric Station Wagon er fyrsti 100% rafbíllinn í skutútgáfu á markaðnum þar sem höfuðáhersla er lögð á notagildi fyrir fjölskyldur og ferðaglaða. Þannig er farangursrýmið 479 lítrar og stækkanlegt í 1.367 lítra.
MG5 er rúmir 4,5 metrar að lengd, ríflega 1,8 metrar á breidd og liðlega 1,5 metrar á hæð og er hjólhafið tæpir 2,7 metrar sem skapar meira pláss í farþegarýminu.
Góð drægni
Rafhlaða MG5 er 61,1 kWh sem veitir við góðar aðstæður á blinu 380-400 km drægni eftir búnaðarúrfærslum. Rafmótor MG5 er 115 kW sem skilar um 156 hestöflum og 280 Nm togi til framhjólanna.
MG5 getur tekið við þriggja fasa 11 kW AC hleðslu eða 87 kW DC hleðslu sem skilar u.þ.b. 80% hleðslu á fjörutíu mínútum.
Hámarkshraði MG5 er 185 km/klst og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst. er rúmar 8 sek.
Dráttar- og hleðslugeta
Hámarksdráttargeta MG5 er 500 kg. Hlaða má 50 kg á dráttarkrók bílsins, t.d. nokkrum reiðhjólum á þar til gerðar festingar auk þess sem langbogar MG5 á þaki eru gerðir fyrir allt að 75 kg hleðslu.
Comfort og Luxury
BL býður MG5 Electric Station Wagon í tveimur búnaðarútfærslum; Comfort, sem kostar 5.190 þúsundir króna, og Luxury, sem kostar 5.390 þúsundir króna.
Báðar gerðir eru vel búnar öryggis- og þægindabúnaði á borð við MG Pilot aðstoðarkerfið, MG iSMART Lite, 7“ snertiskjá, hita í framsætum, lyklalaust aðgengi, Android Auto™ og Apple Carplay™ og 6 hátölurm auk skynvædds hraðastillis svo nokkuð sé nefnt.
Luxury útgáfa MG5 kemur svo á 17“ álfelgum í stað 16“, 360° myndavél með kvikum leiðsögulínum, vandaðri sætisáklæðum og hitastýringu svo dæmi séu tekin.
Hægt er að kynna sér MG5 Electric Station Wagon nánar á vefsíðu MG á Íslandi; mgmotor.eu/is-IS.
Umræður um þessa grein