Bílasalan fer hægt af stað
- Um 20% samdráttur miðað við sama tíma í fyrra
- BL söluhæst bílaumboðanna
Þegar sölutölur nýrra bíla eru skoðaðar núna að loknum fyrsta mánuði ársins má sjá að sala á nýjum bílum fer hægt af stað, miðað við sama tímabil í fyrra, árið 2020.
Þegar við skoðum töfluna hér að neðan yfir bílasöluna núna í janúar samanborið við árið í fyrra (bæði til einstaklinga, fyrirtækja og í bílaleigur), þá er salan 666 bílar samanborið við 838 í fyrra, og þetta er 20,5% samdráttur á milli ára. Af níu efstu bílaumboðanna eru það aðeins fimm sem hafa selt bíla í bílaleigur.
BL er efst á lista yfir umboðin með 143 bíla selda til einstaklinga og fyrirtækja. Hekla er í öðru sæti með 119 selda bíla, Toyota í því þriðja með 109 bíla, Askja í fjórða sæti með 113 bíla og Brimborg með 99 bíla.
Önnur umboð fylgja þar á eftir með heldur færri bíla hvert.
Land Rover Defender hástökkvari BL í janúar
BL var að senda frá sér fréttatilkynningu um söluna núna í janúar:
Í janúar voru 666 fólks- og sendibílar nýskráðir saman borið við 838 í sama mánuði 2020. Af heildarfjölda nýskráðra voru 154 af tegundum BL og var markaðshlutdeild fyrirtækisins rúm 23 prósent í mánuðinum. Hjá BL voru Nissan, Hyundai, Land Rover, Renault og BMW söluhæstu bílarnir með alls 126 nýskráningar. Af þeim voru 56 umhverfismildir, 45 rafbílar, flestir frá Nissan eða 21, og 26 tengitvinnbílar, flestir frá BMW, eða 17.
Af einstökum merkjum BL var Land Rover hins vegar hástökkvari mánaðarins með 80% fleiri nýskráningar heldur en á sama tíma fyrir ári.
Þar ráða úrslitum góðar viðtökur kaupenda á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði við nýjum Defender og komst bíllinn m.a. á topp tíu lista mánaðarins yfir söluhæstu gerðirnar á markaðnum í janúar.
Leaf og Defender á fyrirtækjamarkaði
Að liðnum fyrsta mánuði ársins er BL sem stendur helsta bílaumboðið á samanlögðum einstaklings- og fyrirtækjamarkaði, með 22,6% hlutdeild, en einnig á markaði bílaleiga þar sem hlutdeildin var 32,4% í janúar.
Á hinn bóginn voru óvenjufáir bílar nýskráðir bílaleigunum, eða einungis 34 samanborið við 197 í janúar 2020, sem gerir tæplega 83% samdrátt milli ára.
Af einstökum tegundum var Hyundai i20 með flestar nýskráningar inn á bílaleigumarkaðinn. Á fyrirtækjamarkaði fólksbíla einum og sér var hlutdeild BL 26,8% og þar komust bæði Nissan Leaf og Defender á topp tíu lista mánaðarins.
Sendibílar
Í janúar voru 57 litlir og meðalstórir sendibílar nýskráðir til einyrkja og fyrirtækja og voru 23 frá BL eða 26,7%, aðallega Renault og Nissan. Í flokki meðalstórra sendibíla á markaðnum var Renault Trafic söluhæstur. Nýskráningar lítilla og meðalstórra sendibíla voru tæpum 16% færri í nýliðnum mánuði en á sama tíma 2020.
(fréttatilkynning)
Umræður um þessa grein