Í ágúst voru 952 fo?lks- og sendibílar nýskráðir, tæplega 61% fleiri en í sama mánuði á síðasta ári þegar nýskráðir voru 554 bílar. Af þeim 952 bílum sem landsmenn festu kaup á í ágúst voru 212 af merkjum sem BL hefur umboð fyrir og nam aukningin 81,2 prósentum milli ára, en nýskráningar fo?lks- og sendibíla frá BL voru 117 í ágúst í fyrra.
Hyundai söluhæstur hjá BL
Af merkjum BL var Hyundai með langflestar nýskráningar eða alls 80. Hyundai var jafnframt einn af söluhæstu bílunum á einstaklingsmarkaði, þar sem Tucson og rafbíllinn Kona báru hæst, auk þess sem Hyundaimerkið var fyrirferðarmest hjá bílaleigunum í mánuðinum.
Nissan var næstsöluhæstur hjá BL með 35 nýskráningar og Land Rover í þriðja sæti með 25.
Af þeim 212 merkjum frá BL sem nýskráð voru í ágúst voru 111 nýorkubílar, 44 hreinir rafbílar, aðallega Nissan og Hyundai, og 67 tengiltvinnbílar, þar sem flestir voru frá BMW, Hyundai og Land Rover. Heildarmarkaðshlutdeild BL í ágúst var 22,3% og 22% það sem af er ári.
Mikill viðsnúningur hjá bílaleigunum
Mikill og jákvæður viðsnúningur hefur orðið á nýskráningum fólks- og sendibíla til bílaleiganna, eða allt frá því í apríl, og hefur sú þróun haldist síðan.
Þannig varð 705% aukning í apríl miðað við sama mánuð 2020, 1.095% aukning í maí, 309% í júní, 48% í júlí og 381% í nýliðnum ágústmánuði borið saman við sama tímabil í fyrra. Alls voru 327 bílar nýskráðir bílaleigunum í ágúst, þar af 67 frá BL. Um síðustu mánaðamót höfðu 2.069 fólks- og sendibílar af merkjum BL verið nýskráðir til bílaleiganna.
Markaðirnir þrír
Heildarfjöldi nýskra?ðra fo?lks- og sendibíla fyrstu átta mánuði ársins var 9.457 samanborið við 6.918 á sama tímabili í fyrra og nam aukningin 36,7%. Af heildarfjölda þessa árs hafa 2.069 verið bílar sem BL hefur umboð fyrir. Af þeim keyptu einstaklingar 779, fyrirtæki og einyrkjar 424 og bílaleigurnar 866. Markaðshlutdeild BL það sem af er a?rinu er 21,9%.
Umræður um þessa grein