Manni þótti vænt um hana
Ég hef alltaf verið aðdáandi Mazda 929. Kúpubakurinn var sérlega vel heppnaður og einn flottasti japanski sportarinn á þeim tíma sem hann var kynntur. Í Japan var bíllinn seldur undir gerðarheitinu RX4. RX4 bílarnir voru með rotary vél sem gerði þá ennþá eftirsóknarverðari sem sportara. Í heimalandinu hét bíllinn Luce.
Ég hef reyndar áður skrifað um þennan sama bíl hér á Bílablogg en ég fæ bara ekki nóg af að spá og spekúlera um þessa vel heppnuðu og flottu bíla æsku minnar. Hér er síðan hlekkur á grein um Mazda 818 sem ég minntist fyrir fáeinum dögum.
Gerðir sem komu á markað voru stallbakur, kúpubakur og skutbíll. Mazda 929 var sá söluhæsti árið 1975.
Gróft vélarhljóð sem hljómað gat eins og hálfgildings formúluhljóð – ef maður lokaði augunum og ímyndaði sér.
Hér var kagginn seldur sem Mazda 929 Coupé. Mig minnir að bíllinn hafi fyrst komið hingað 1973. Frumsýning bílsins fór fram í bakhúsi við Ármúla 7. Þar var einnig standsetning Bílaborgar á þeim tíma en söluumboðið var að Hverfisgötu 76.
Enn og aftur man undirritaður eftir að slíkur bíll var einmitt keyptur sem fjölskyldubíllinn árið 1973.
Þá var Mazda 616 skipt út fyrir brúnan Mazda 929. Af þessu eintaki týndust lyklar og dróst því afhending nýja bílsins úr hömlu.
Hins vegar man ég eftir að hafa hljólað upp í Ármúla að minnsta kosti einu sinni á dag til að kíkja á gripinn og finna ryðvarnarilminn. Gott ef ég kynntist ekki köllunum á verkstæðinu – allavega fékk ég oft að setjast inn í bílinn.
Almennt var sú gerð sem hingað kom með 1800 rúmsentimetra línuvél, fjögurra gíra, 110 hestafla vél sem togaði um 137 Nm.
Bíllinn var þýður, mjúkur og hljóðlátur og aflið var ágætt minnir mig. Ég tek það fram að ég var bara barn sem sat aftur í en hlustaði því meira á fullorðna fólkið tala um bíla.
Meðfylgjandi eru myndir af netinu sem ég valdi af handahófi af flottum 929 Mözdum frá gullaldarárunum.
Hér má lesa um reynsluakstur á Mazda 929 Coupé frá árinu 1974. Greinin birtist þá í Lesbók Morgunblaðsins.
Umræður um þessa grein