Brot úr dagbókarfærslum lögreglunnar í Reykjavík 1990 – 1993
Það er orðið æði langt síðan undirrituð gluggaði í dagbókarfærslur lögreglunnar en almennt séð á maður vissulega ekki að lesa dagbækur annarra. Þetta er öðruvísi en eins og einhverjir lesendur muna þá birtist samantekt vikunnar í dálki sem leit svona út …
… á þriðjudögum í Morgunblaðinu frá árinu 1990 en síðar breyttist birtingarformið auðvitað með veraldarvefnum (sem flestir vita núna að er ekki bara bóla).
Þetta þótti manni nú gaman að lesa áður en lagt var af stað í skólann á þriðjudagsmorgnum. Átta ára gömul flýtti ég mér að ná blaðinu á undan pabba til að lesa „Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík“ en síðar komum við feðgin okkur upp kerfi til að bæði gætum við lesið blaðið án þess að við færum að karpa.
Oftast voru þessar færslur mjög skemmtilega skrifaðar og hér eru nokkur dæmi sem ég tók saman í gærkvöld. Vona að lesendur sjái kómísku hliðina á þessu en það er síður en svo ætlunin að henda gaman að laganna vörðum og því mikilvæga starfi er þeir gegna (bara svo það sé á hreinu).
Tré, tær og vitlausir ljósastaurar
Síðdegis á laugardag flæktist tré, að sögn ökumanns, fyrir bifreið á Miklubraut á móts við Rauðagerði. Ökumaðurinn er reyndar grunaður um ölvun við akstur. Þá fannst ökumanni bifreiðar, sem ekið var á ljósastaur á sunnudag, ámælisvert að ljósastaurar skuli ná alveg niður að jörðu. Sá er einnig grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis við aksturinn.
31 var kærður fyrir of hraðan akstur um helgina, 5 fyrir stöðvunarskyldubrot, 9 fyrir akstur gegn rauðu ljósi, 8 fyrir að vanrækja skoðun og 12 aðrir fyrir ýmis umferðarlagabrot, s.s. vanrækslu á að nota ökuljós og/eða belti. 14 eru grunaðir um ölvun við akstur, og eru þeir þá meðtaldir, sem höfðu sínar skoðanir á trjágróðri og ljósastaurum.
Gamall ljósastaur við Hofsvallagötu tók til við að syngja aðfaranótt laugardags. Rafmagnsveitan sá um að þagga niður í honum. […] Skólausan „araba” þurfti að vista í fangageymslunum aðfaranótt sunnudags. Um var að ræða öðruvísi sinnaðan Íslending er var sannfærður um að hann væri arabi og hefði öðrum fremur merkum tilgangi að þjóna hér á landi.
Maður slasaðist í rennibrautinni í Sundlaugunum í Laugardal á sunnudag. Hann var fluttur á slysadeildina. Hvetja ber fólk til þess að fara varlega í brautinni, því fleiri slys hafa orðið þar. Á sunnudag missti maður tá í sláttuvél. Tám landsmanna hefur fækkað nokkuð í ár af samskonar völdum.
Ömmubíll, veggur og vitlaus bíll
10. – 15. október 1990:
Um helgina hafði lögreglan afskipti af ölvuðum manni, sem hafði látið bifreið renna niður Bankastræti og á vegg þar við götuna. Maðurinn þrætti fyrir að hafa ætlað að aka og gaf þá skýringu á óhappinu að hann hefði ætlað að sækja bifreið ömmu sinnar. Sú bifreið hafði verið skilin eftir í Bankastræti. Þegar hann hafði sest inn í bifreið, sem hann taldi vera þá réttu og verið að reyna að troða lyklinum í kveikjulásinn hafi bifreiðin runnið af stað undan hallanum, föst í stýrislás, og á vegginn. Þá fyrst hafi hann uppgötvað að hann hafði sest upp í vitlausa bifreið.
Önnur saga úr umferðinni. Hjón hittust í Kringlunni á föstudag. Þau höfðu komið þangað í sitt hvoru lagi á sitt hvorri bifreiðinni, en ákváðu síðan að hittast heima hjá foreldrum hennar. Hann ók á undan, en hún á eftir austur Miklubraut. Þegar þau áttu skammt eftir ófarið að gatnamótum Grensásvegar sá hún að umferðarljósin voru að skipta yfír á rautt og ákvað að auka hraðann þar sem hún taldi víst að hann myndi ætla yfír. Hann var hins vegar löghýðinn og ákvað að stöðva þó seint væri. Afleiðingarnar má sjá á sitt hvorum enda bifreiða þeirra hjóna. Nú er verið að kanna hvort tryggingafélagið borgi ekki tjónið á a.m.k. annarri bifreiðinni.
Eins og skyggnið hafi ekki verið nógu slæmt fyrir
Veðrið var t.d. það blint að einn ökumannanna, sem var að koma úr Mosfellsbænum, sá ekki lögreglubifreið, þá er notuð var til þess að loka veginum, fyrr en hann lenti á henni. Tjón var minniháttar. Þá var annarri bifreið ekið inn í beygju í austurborginni og framan á aðra bifreið, sem ekið var úr gagnstæðri átt. Orsökin var sú að ungum farþega í aftursætinu fannst allt í einu ástæða til að bregða úlpuhettu ökumanns fyrir augu hans í sömu andrá og ekið var í beygjuna, eins og skyggnið hafi ekki verið nógu slæmt fyrir.
Fleira hressandi úr blöðunum frá árunum fyrir tíma athugasemdakerfanna:
Skellinöðrufaraldurinn og Hannes á horninu
Dauðinn á þjóðveginum [Miklubrautinni]
Ljótt af blaðamanni að nota orðið bíldrusla
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein