Volkswagen ID.4 hlýtur titilinn heimsbíll ársins
- Mercedes-Benz S-Class, Porsche 911 Turbo, Honda e og Land Rover Defender voru valdir í sínum flokki
Rafbíllinn Volkswagen ID.4 hefur verið krýndur heimsbíll ársins 2021. Verðlaunin eru veitt af nefnd 93 blaðamanna sem eru fulltrúar 28 mismunandi landa. Þessi rafbíll frá VW, ID.4, var talinn merkasti nýi bíll ársins og sló út 24 aðra tilnefnda. Hinir tveir í efstu sætunum meðal keppenda voru Toyota Yaris og Honda e.
Að auki heiðruðu WCOTY dómnefndarmenn endurhannaða Mercedes-Benz S-Class 2021 sem lúxusbíl ársins á heimsvísu. Verðlaunin fyrir „sportbíl“ ársins (World Performance Car of the Year) hlaut ný 992 kynslóð Porsche 911 Turbo. Heimsbíll ársins fyrir þéttbýli var Honda e, rafknúni smábíllinn. Og Land Rover Defender var viðurkenndur sem bílahönnun ársins á heimsvísu.
VW ID.4 – heimsbíll ársins 2021
Mercedes-Benz S-Class – lúxusbíll ársins á heimsvísu
Porsche 911 – sportbíll ársins á heimsvísu
Honda e – Heimsbíll ársins fyrir þéttbýli
Rover Defender – bílahönnun ársins á heimsvísu.
Þetta er 17. árið sem þessi verðlaun eru veitt. Meðal fyrri sigurvegara í vali á heimsbíl ársins eru Kia Telluride í fyrra, Jaguar I-Pace árið 2019 og Volvo XC60 árið 2018.
Samantekt á stigagjöf
Hér að neðan verður farið nánar yfir niðurstöðurnar úr valinu og stigagjöf hvers bíls.
Hver dómnefndarmannanna 94 gaf stig fyrir átta þætti: Umhverfi farþega, Frammistöðu, Gildi, Umhverfisáhrif, Mikilvægi á markaði, Tilfinningaleg áhrif og Nýjungar. Samtala þessara þátta er heildarstigatala viðkomandi bíls.
Heimsbíll ársins 2021
Volkswagen ID.4-798 stig
Honda e-742 stig
Toyota Yaris-732 stig
Lúxusbíll ársins á heimsvísu
Mercedes-Benz S-Class-853 stig
Polestar 2-815 stig
Land Rover Defender-774 stig
Sportbíll ársins á heimsvísu
Porsche 911 Turbo-822 stig
Audi RS Q8-792 stig
Toyota GR Yaris-773 stig
Heimsbíll ársins fyrir þéttbýli
Honda e-754 stig
Toyota Yaris-737 stig
Honda Jazz/Fit-719 stig
Bílahönnun ársins á heimsvísu.
Land Rover Defender-299 stig
Honda e-239 stig
Mazda MX-30-197 stig
(í þessum síðasta flokki var bílum einfaldlega raðað í sæti, engin stigagjöf)
Rafbíll ársins á heimsvísu bætist við á næsta ári
Helsti hápunktur verðlauna fyrir heimsbíl ársins 2022 verður kynningin á flokki fyrir rafbíl ársins á heimsvísu (World Electric Vehicle of the Year).
Það að verðlauna „rafbíl ársins á heimsvísu“ kemur inn sem nýr flokkur inn í verðlaunaveitinguna á árinu 2022
- Nýju verðlaunin „World Electric Vehicle of the Year“ bætast við á næsta ári
- Ferlið í val á „heimsbíl ársins 2022“ hefst 19. ágúst 2021 og verður kynnt á bílasýningunni í New York
Heimsbílaverðlaunin (WCA) eru ein virtustu viðurkenningar bifreiða sem viðurkenna og verðlauna ljómi bifreiða um allan heim. Heimsbílaverðlaunin og 94 alþjóðlegir dómnefndarmenn tilkynntu á dögunum að þeir komust í fremstu röð eftir fyrstu umferð kosninganna um heimsbílaverðlaunin í ár. Ennfremur er árið 2021 16. árið í World Car Awards samstarfinu við New York International Auto Show.
Verðlaunatímabilið 2022 og 18. verðlaunaveiting til heimsbílaverðlauna hefst 19. ágúst 2021 á sýningunni í New York. Helsti hápunktur heimsbílaverðlauna 2022 verður kynningin á flokki World Electric Vehicle of the Year. Þessi verðlaun munu beinast að því að viðurkenna, styðja og fagna umskiptum yfir í rafknúin ökutæki sem og viðleitni bílaframleiðandans við að þróa loftslagsvæna ökutæki.
Mark Schienberg, forseti bílasýningarinnar, sagði: “Það hefur aldrei verið betri tími til að varpa ljósi á og fagna bestu rafknúnu ökutækjum heims. Við erum himinlifandi yfir því að vera enn og aftur hluti af World Car Awards í ár og erum spennt að bæta þessum nýju verðlaunum við.
Þar sem mikilvægi fólksbifreiða og vaxandi áhugi neytenda er, er þörfin fyrir áreiðanlegar heimildir sem neytendur geta leitað til, í fyrirrúmi, og eins og bílasýningin í New York eru helstu blaðamenn greinarinnar sem skipa dómnefnd í vali á heimsbíl ásrins traust úrræði fyrir kaupendur til að skoða og ákveða næsta nýja farartæki sitt“.
Umræður um þessa grein