Mat Watson kannast margir við sem andlit carwow! Þessum manni leiðist aldrei, enda hefur hann ekki tíma til þess. Hann er alltaf á fleygiferð og að flýta sér og samt er hann hress náungi. Núna hefur hann á miklu spani komið í kring kvartmílukeppni –þar sem keppt er á trukkum.
Þar sem Mat er með milljónir fylgjenda á YouTube ætti ekki að koma mjög á óvart að á sex tímum voru yfir 130 þúsund áhorf á þetta myndband sem hér fylgir.
Þessi trukkaspyrna 7 ólíkra trukka er auðvitað fyrst og fremst grín en það virðist sama hvað þessi náungi gerir; það fær áhorf.
Trukkaspyrna, gjörið svo vel (athugið að myndbandið hefst þar sem spyrnan hefst – þeir blaðra of mikið á undan nefnilega):
Umræður um þessa grein