Þau ykkar sem fylgjast með Formúlu 1 vita að liðsstjórinn Toto Wolff getur sannarlega reynst allt annað en lamb að leika við – jafnvel þótt maður hafi bara séð hann á skjánum. Þetta er ákveðinn karl! Hér, í myndbandinu fyrir neðan, ekur hann Ineos Grenadier og tekur aðeins á bílnum.
Liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff, er reffilegasti náungi. Sjaldnast sjáum við sem heima sitjum þennan mann aka bíl en hann hefur mikið um það að segja hvernig aðrir aka bílum. Þ.e. þeir Lewis Hamilton og George Russel í Formúlu 1.
Sjálfur keppti hann árið 1992 í hinni austurrísku Formula Ford og þýsku Formula Ford Series. Hann vann í sínum riðli í 24 Hours Nürburgring árið 1994 auk þess sem hann keppti í FIA GT meistarakeppninni og Italian GT meistarakeppninni.
Hann er enginn aukvisi.
Þess vegna varð undirrituð ögn hissa á að fyrsta mínútan í þessu rúmlega tveggja mínútna myndbandi sé svona tíðindalaus. En svo setur Toto Wolff í rétta gírinn og leyfir Ineos Grenadier að „hlaupa“.
Ekki má vanmeta samtal þeirra Wolff og Dirk Heilmann https://media.ineosgrenadier.com/dirk-heilmann-2/?lang=en (forstjóra Ineos) í bílnum um að hverju þarf að huga þegar almennilegt ökutæki er smíðað.
Þessu tengt:
Toto Wolff segir frá starfi sínu á mínútu
Ineos Grenadier í sprengjuleit
Formúluökumaður auglýsir Grenadier-jeppann
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein