Síðasta sólarhringinn hefur töluvert verið fjallað um Teslu Model Y sem gerði nú bara það sem hún átti að gera; hlýddi „kalli“ eigandans í „Summon mode“ en þannig getur eigandinn „kallað á bílinn“ til dæmis á bílastæði. Því miður var einkaþota fyrir Teslunni. Enda var þetta á flugvelli.
Á vef CarThrottle segir að enn hafi ekki komið fram hvort bíllinn var mannlaus eður ei, en það er hins vegar ljóst að þessi Cirrus Vision þota kostar rúmar þrjár milljónir dollara þannig að þetta lítur ekki vel út á peningahliðinni. Og raunar lítur þetta allt bara illa út, sama hvaða hlið er horft á.
Sjálfri þykir mér magnað að sjá hvernig Teslan „færir“ þotuna eins og ekkert sé en þetta er ekkert fis – nei þetta er þota.
Ef rétt reynist að sjálfstýribúnaður bílsins hafi verið í „Summon mode“ þá þarf kannski að fínisera eitthvað í þeim annars snjalla búnaði. Það að bíllinn geti komið og sótt eigandann þar sem hann kemur klyfjaður út úr Kringlunni, er auðvitað snilld. En kannski og bara kannski, ætti að hugsa þetta eitthvað betur. Til dæmis út frá sjónarhorni vængjaðra farartækja…
Þessu tengt:
CNN gerir gys að sjálfkeyrslubúnaði Tesla
Hvað næst? Jú, Tesla með þotumótorum
Á blússandi ferð á rafbíl 1899
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein