Svona gæti nýr rafdrifinn Renault4 litið út
- Myndum af nýjum rafknúnum Renault 4 lekið með einkaleyfaumsókn
- Sögusagnir um endurvakningu Renault 4 magnast með mögulegum hugmyndabíl sem gæti verið frumsýndur síðar á þessu ári
Renault virðist ætla að fylgja eftir endurgerð Renault 5 í rafmagnsútgáfu með annarri nútímatúlkun á einum af einkennisbílum vörumerkisins – nýjum Renault 4.
Fyrstu teikn þess eðlis benda til þess að Renault 4 sé lítilli bíll án nokkurra fínheita (líkt og Gami R4 var), al-rafknúinn sportjeppi sem er hliðstæða Renault 5 rafmagnsbílsins sem kynntur var sem hugmyndabíll í byrjun árs.
Þessar einkaleyfamyndir sem hafa lekið út sýna að sögn hönnun nýja Renault 4, að minnsta kosti í svipaðri hugmyndaframleiðsluformi og nýja 5 frumgerðin.
Líkindi milli gömlu 4 og nýju endurskoðaða bílsins fela í sér áberandi snið og lögun C-bitans (aftari gluggans á upphafleg R4), en framendinn er svipuð lögun og seinni útgáfur af þessum söluháa bíl frá vörumerkinu.
Renault er sem stendur ekki með neinn lítinn sportjeppa í sínu framboði í Evrópu, en mun kynna einn með næstu kynslóð rafknúna Megane sem verður rafknúinn hliðstæða Captur að stærð.
Það gæti samt verið pláss undir því fyrir 4, sem einnig væri hægt að bjóða sem útgáfu sem atvinnubíl.
Fleiri bílar byggðir á eldri gerðum væntanlega á leiðinni
Auto Express spurði hvort vörumerkið myndi leita að því að kynna frekari nýjar gerðir byggðar á eldri gerðum Renault, sagði forstjórinn Luca de Meo: „Svarið er já. Ég held að það hafi verið svo margar vörur í fortíð Renault sem hafa skrifað sögu.
Það væri leitt að tengjast ekki aftur þessari löngu hefð. Við erum ekki hér aðeins til að líta í baksýnisspegilinn. Við erum hér til að finna upp hlutina á ný. Ég held að Renault 5 sé gott dæmi um þetta. “
Renault hefur ekki gefið neitt formlega upp um það að endurvekja Renault 4.
En áður en þessar nýju myndir komu fram voru miklar vangaveltur sem bentu til þess að vörumerkið skuldbindi sig til að endurvekja gerðina og vörumerkjaumsókn fyrir 4 merki í sama stíll eins og nýi 5 fær hefur einnig komið fram.
Á þessu ári halda upprunalegu Renault 4 upp á 60 ára afmæli sitt og Renault hefur kynnt að það verði „óvænt uppákoma“ byggt á 4L sendibílnum í nóvember.
Það gæti verið vísbending um að við gætum séð hugmynd sem forsýnir nýja bílinn í lok árs 2021 og tengist frekari orðrómi um að nýr Renault 4 muni bjóða upp á ódýrt, rafknúið afbrigði af atvinnubílum.
Verði Renault fjórir byggðir á sama grunni og nýi Renault 5 mun hann nota CMF-B grunninn sem nú er notaður fyrir undir Zoe, sem er breytt útgáfa af grunni Clio sem var gerð hentug fyrir rafknúna drifrás.
(Frétt á Auto Express)
Umræður um þessa grein