Staria- nýr fjölnotabíll frá Hyundai
- Hyundai Motor sýnir fyrstu myndir af STARIA, nýjum „fjölnotabíl“ með sérstæðri og framúrstefnulegri hönnun
SEOUL 11. mars 2021 – Hyundai Motor Company sýndi í dag kynningarmyndir af STARIA, nýjum fjölnotabíl vörumerkisins (MPV). Myndirnar sýna STARIA Premium, hágæða afbrigði af STARIA-bílnum.
Margir hér á landi muna eflaust eftir Hyundai H-1 eða Starex, sem var vinsæll bíll fyrir stórar fjölskyldur, bíll með aldrifi og ágætri veghæð sem hentaði vel fyrir íslenskar aðstæður. Þessi nýi bíll, Staria, byggir vissulega á þessum gamla grunni
STARIA nafnið sameinar „stjörnu“ og „ria“ (en skilgreining á ria í Suður-Kóreu er „langt þröngt vatnssvæði sem myndast þegar á flæðir um dalinn“, með vísan til framtíðarstýrðs vörugildis bílsins og straumlínulagaðra hönnunareiginleika sem skilgreind eru með sveigðri hönnun og hreinum línum ásamt góðu plássi, að því sem fram kemur af hálfu Hyundai.
STARIA endurspeglar skuldbindingu Hyundai um að leiða framtíð hreyfiiðnaðar sem „Smart Mobility Solution Provider“, undir sýn vörumerkisins „Framfarir fyrir mannkynið.“ STARIA er búin ýmsum eiginleikum sem miða að ökumönnum og framúrstefnulegum hönnunarþáttum sem skila nýrri reynslu fyrir ökumenn og farþega sem gera tímann í akstri betri og þess virði.
Fram kemur á heimasíðu Hyundai að STARIA býður upp á áberandi framúrstefnulegt og dularfullt ytra byrði sem líkist geimskipi.
Framhliðin er auðkennd með löngu, láréttu dagljósi og aðalljósum, sem eru staðsett þar fyrir neðan. „Geimskipið“ er undirstrikað enn betur með stórum gluggum og línum þar fyrir neðan og undirstrikar þannig plássið inni í bílnum.
Hæð innarýmis er einnig hámörkuð fyrir þægindi og notagildi í fremstu röð, sem gerir bílinn tilvalinn fyrir bæði viðskipti og fjölskyldunotkun.
„STARIA er nýja lína fjölnotabíla hjá Hyundai sem opnar á nýja hreyfigetu,“ sagði SangYup Lee, aðalforstjóri og yfirmaður alþjóðlegrar hönnunar Hyundai. „STARIA mun bjóða upp á alveg nýja upplifun og gildi fyrir viðskiptavini með áður óþekktum hönnunaraðgerðum.“
Það kemur fram hjá Hyundai að STARIA Premium, sem verður fáanlegur á völdum mörkuðum, færir hreyfanleika á næsta stig, með frábæra eiginleika og einstakan frágang fyrir lúxusútlit og upplifun.
Hyundai Motor mun afhjúpa frekari upplýsingar varðandi hönnunarþætti STARIA og STARIA Premium á næstu vikum.
(frétt á heimasíðu Hyundai í S-Kóreu)
Umræður um þessa grein