Stal Corvettu nýlátins manns – á stolnum bíll með stolinni kerru
Það er auðvitað eðli skúrka að vera óttalegir skúrkar og því ætti nú ekki að kippa sér upp við að bílaþjófar steli bílum. Hér segir frá einum sérdeilis óprúttnum bílaþjófi sem beið ekki boðanna þegar eigandi ákveðinnar Corvettu hrökk upp af standinum…
Fyrir tveimur vikum sá maður nokkur í Memphis í Tennessee hvar náungi á Ram pallbíl (með bílakerru í eftirdragi) bakkaði upp að húsi nágrannans þar sem hann gerði sér lítið fyrir og vippaði Corvettu 1976 upp á kerruna og ók svo á brott. Málið er að nágranninn sem átti þessa Corvettu var nýlátinn og því fannst manninum eitthvað bogið við þetta.
Myrkraverk í björtu
Núnú! Ekki nóg með að þetta hafi verið gert um hábjartan dag heldur var bíllinn sem til verksins var notaður líka í annars eigu. Það er að segja; bílaþjófurinn stal bæði Ram og bílakerru til að stela Corvettunni.
Það tók lögregluna tiltölulega skamman tíma að finna Corvettuna eða rúma viku. Það er nú nokkuð gott því sumir stolnir finnast aldrei þarna fyrir vestan.
Einhver staðsetningargræja var í bílnum og þannig tókst laganna vörðum að áætla á hvaða svæði hann væri. Og með nákvæmum tækjum var smám saman hægt að finna nákvæma staðsetningu.
Atkins hinn upptekni
Þá blasti við lögreglunni Ram nokkur með bílakerru og á kerrunni var Vettan; aðeins þremur mílum frá þeim stað sem bílnum var stolið – þ.e. Corvettunni. Nú er sagan ekki búin því það næsta sem kom í ljós var náungi nokkur með sverðsög í gangi, önnum kafinn við að saga hvarfakút undan smárútu úti á miðri götu.
Já, hann var upptekinn, hinn 34 ára gamli Christopher Atkins, en þrátt fyrir annir stökk hann frá hálfnuðu verkinu og tók á sprett. Það gerðu laganna verðir líka; þeir tóku á sprett, náðu Atkins og handtóku hann.
Atkins hinn iðni játaði að hafa verið í umræddum Ram einmitt þegar Corvettunni var stolið og jú, gott ef hann rak ekki minni til þess að hafa tekið Raminn ófrjálsri hendi og svo framvegis. Svona geta menn nú verið bíræfnir og það hefur víst færst í aukana að menn steli bílum (dráttarbílum) til að stela bílum þar vestra. Ætli það sé ekki minna um það hér á landi og vonandi helst það þannig.
Þjófar af svipuðu sauðahúsi:
Bílaþjófur fær rækilega á lúðurinn
Stal sögufrægum bíl en skilaði honum
Stal 50 bílum til að gleðja kærusturnar 16
5000 bílum, þremur eiginkonum og þremur morðum síðar
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
?
Umræður um þessa grein