Að sprengja framdekk þegar ekið er á fullri fart er aldrei gaman. En það er ágætt að vera búinn að undirbúa sig í huganum þannig að fyrstu viðbrögð verði ekki þau að stíga á bremsuna. Það gerir vont enn verra! Svo ekki sé minnst á að skella inngjöfinni í gólfið. Það er líka afleit hugmynd.
Meðfylgjandi myndband er stutt og gæðin lítil en þetta er samt ágætis áminning um að vera viðbúinn því sem gæti gerst og hvernig best væri að bregðast við.
Af dekkjum sem ferðast ein:
Hversu óheppinn… eða heppinn?
Þegar dularfullt „draugadekk“ tekur fram úr
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein