Í morgun birtust niðurstöður síðustu öryggisprófana Euro NCAP fyrir árið 2021. Rafbíllinn Renault Zoe kom vægast sagt skelfilega út og sömuleiðis ættingi hans, Dacia Spring.
Það er langt síðan bíll hefur fengið „núll“ eða enga stjörnu í prófunum Euro NCAP en þannig fór fyrir Renault Zoe í öryggisprófunum. Hann fékk enga stjörnu. Síðasti bíll sem kom svona agalega illa út var Fiat Panda árið 2018.
Skellur fyrir framleiðandann og afturför
Í umsögn Euro NCAP um þessar niðurstöður segir meðal annars að í heildina litil sé árekstrarvörnum ábótavant í Renault Zoe og árekstraröryggistækni sé það slök að ómögulegt sé að gefa bílnum eina einustu stjörnu.
Michiel van Ratingen, sem er yfir öryggisprófunum Euro NCAP sagði að sú hafi verið tíðin er Renault var það merki sem fremst var í flokki þegar kom að öryggi.
„Laguna var fyrsti bíllinn sem fékk fullt hús stiga, fimm stjörnur, og það var árið 2001. En þessar svekkjandi niðurstöður Zoe og Dacia Spring, gefa til kynna að öryggisþættir og öryggisstefnan hafi mætt algjörum afgangi og hreinlega goldið afhroð við skipti framleiðandans yfir í rafbíla,“ sagði Ratingen.
Umræður um þessa grein