Rafbílafyrirtæki í S-Kóreu kaupir SsangYong
Rafbílafyrirtækið Edison Motors mun kaupa skulduga kóreska bílaframleiðandann SsangYong á 225 milljónir dollara
Reuters
Í nokkurn tíma hefur verið óljóst hvað myndi verða um SsangYong í Suður-Kóreu en samkvæmt frétt Reuters hafa samtök undir forystu suður-kóreska rafbílaframleiðandans Edison Motors samþykkt að kaupa SsangYong Motor fyrir 305 milljarða won (254,65 milljónir dollara), sagði SsangYong Motor á mánudaginn.
SsangYong er hlaðið miklum skuldum og bílasala þess á síðasta ári lækkaði í 84.496 eintök, sem er um 21 prósent lækkun frá fyrra ári, samkvæmt eftirlitsskýrslu frá bílaframleiðandanum.
Bílaframleiðandinn greindi frá rekstrartapi janúar-september 2021 upp á 238 milljarða won af tekjum upp á 1,8 billjónir won.
SsangYong hefur verið í hálfgerðri gjaldþrotameðferð síðan í apríl í tilraun til að koma bílaframleiðandanum aftur á réttan kjöl eftir að meirihlutaeigandanum Mahindra og Mahindra tókst ekki að tryggja kaupanda.
Indverski bílaframleiðandinn Mahindra, sem átti um 75 prósent í SsangYong í lok september, hefur verið að leita að kaupanda fyrir allan eða mestan hlut sinn, sem hann keypti þegar suður-kóreski bílaframleiðandinn varð næstum gjaldþrota árið 2010.
Umræður um þessa grein