Polestar byggði sýningarsal úr snjó á heimskautsbaugnum
„Polestar Snow Space“ í Finnlandi býður gestum upp á reynsluakstur og heitt súkkulaði
Ef snjókarlinn „Frosty“ ætti að ákveða að skipta út kústskafti sínu fyrir nýjan bíl, þá er augljós staður til að fara til að prufukeyra einn slíkan: Polestar sýningarsalur úr snjó á heimskautsbaugnum.
Formlega kallaður „Polestar Snow Space“ í bænum Rovaniemi í Finnlandi, gæti þessi tæplega 12 metra hái teningur gæti verið fullkominn í þessu tilliti.
Alrafmagnaði Polestar 2 sem þarna er til sýnis er úr málmi, en nánast allt annað sem er til sýnis inni er byggt úr snjó og ís: skúlptúrar sem sýna hjól, fjöðrunarhluta og bremsur.
Polestar Space – það eru um 130 slík „rými“ um allan heim – bjóða gestum upp á reynsluakstur á snjóbraut.
Þú getur ekki keypt bíl þar, þar sem flestir bílar Polestar eru seldar á netinu með „fyrst stafrænni“ gerð.
„Snjórýmið“, sem var smíðað með 3.000 rúmmetrum af snjó frá finnska skíðasvæðinu Ounasvaara, opnaði dyr sínar (jæja, þær opnast eiginlega ekki) 10. janúar.
Það er með 2ja metra þykka veggi úr snjó og tók um það bil 20 daga að byggja húsið.
Byggingaraðili setti upp sérstök mót fyrir veggina sem síðan voru fyllt af snjó sem þjappað var saman.
Þetta „bílasnjóhús“ var innblásin af minimalískri skandinavískri hönnun höfuðstöðva Polestar í Gautaborg, Svíþjóð, og byggð af finnska fyrirtækinu Frozen Innovation eftir áætlunum sem teiknaðar voru af arkitektum Polestar.
Martin Österberg, markaðsstjóri Polestar Finnlands, sagði: “Bærinni í Rovaniemi er þekktur fyrir frábæra hönnun sína.
Við vildum heiðra þetta með því að búa til fallegt verk sem var innblásið af naumhyggjulegu og hreinu hönnunartungumáli vörumerkisins okkar.”
Gestir geta komið í heimsókn til 26. febrúar þegar teningurinn verður tekinn í sundur og snjónum skilað í skíðabrekkurnar.
En ekki örvænta, „Snow Space“ gæti komið aftur einhvern daginn.
(frétt á vef Autoblog)
Umræður um þessa grein