Hasar þarf ekki endilega að vera eitthvað sem gerist hratt. Á hraðbraut nokkurri í Minnesota stakk ökumaður á Toyota Prius lögregluna af, en lögreglubíllinn var af gerðinni Dodge Charger. Raunar voru lögreglubílarnir í eltingarleiknum þrír talsins. Gerðist allt fremur hægt en gerðist þó! Og án þess að of margt sé sagt þá endaði þetta á óvæntan hátt.
Enginn slasaðist alvarlega en maðurinn á Priusnum var á skilorði og ók undir áhrifum fíkniefna. Þegar hann loks náðist beið hans klefi í Hennepin County fangelsinu og þar má hann aka að vild í huganum næstu mánuðina.
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein