Að bjóða vinum sínum upp á skyndibita í Tesla Model S Plaid er í lagi. En bíllinn er 1020 hestöfl og það virkilega gerist eitthvað þegar gefið er í! Þá flýgur matur t.d. út um allt en vonandi þykir eigandanum og sprellikarlinum Alex Choi eins gaman að þrífa og að aka bílnum.
Alex Choi er 25 ára og hann er YouTube-karl sem er stundum frekar fyndinn. Hér er samantekt á myndefni innan úr bílnum þar sem viðbrögð farþega sjást býsna vel þegar hann gefur í á Teslunni. Það sést vel upp í suma farþega en best er þó að sjá þá reyna að borða matinn…
Jæja, hann fer hratt af stað, hvort heldur sem er áfram eða aftur á bak!
Meira um Tesla Model S Plaid:
Heitasta spyrnugræjan? Tesla S Plaid
Fyrsta og síðasta flug nýrrar Teslu
Þrumaði af stað í bakkgír en vann samt
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein