Nissan Juke settur í rallýbúning!
Það var fyrir 50 árum að Nissan stimplaði sig rækilega inn í rallý heiminn með einum frægasta sigri sínum, í East African Safari rallinu á hinum goðsagnakennda Datsun 240Z.
Til að minnast þessa hefur Nissan sett Juke í búning rallýbíls sem kemur reyndar ansi vel út.
Til minningar um Datsun 240Z
Til að minnast þessa toppárangurs frá árinu 1971 hafa hönnuðir Nissan notað Juke sem útgangspunkt í öflugan rallýbíl sem erfa á kosti ættingja síns, 370Z sem kynntur var árið 2009 og þess nýja sem frumsýndur verður nú í ágúst.
Z bíllinn verður víst ekki í boði í Evrópu en Juke verður það. Juke-inn hefur verið settur í sama búning og 240Z bíllinn frá 1971, kastarar á svörtu húddinu, stórir og miklir stuðarar bæði að framan og aftan og tvö varadekk standa uppúr skottinu.
Kraftalegur ásýndum
Sýnilega er bíllinn mun hærri, á risatúttum og eflaust með nýjum fjöðrunarbúnaði en frekari upplýsingar um undirvagninn liggja ekki fyrir. Í stað 210 hestafla sex sílindra bensínvélar forverans verður Juke-inn líklega dirfinn áfram með blendings drifrás, bensín/rafmagn.
Ekki á leiðinni
Það bendir hins vegar ekkert til að þessi rallýbíll verði í boði hjá umboðum á næstunni. Annað eins hefur þó gerst því Nissan hefur búið til fimm stykki af Juke-R sportútgáfu með GT-R, V6 vél.
Svo það er aldrei að vita nema rallý útgáfan verði að veruleika.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem hönnun Z línunnar hefur verið yfirfærð á jeppling. Ef við spólum aftur til baka til ársins 2015 kynnti Nissan hugmyndabíl sem þeir nefndu Gripz og átti að kalla fram „minninguna“ um sportbílinn 240Z. Þó margir hefðu haldið að þessi hugmynda útgáfa yrði framleidd og taka við kyndlinum af 370Z varð ekkert úr því.
Byggt á umfjöllun Autoblog
Umræður um þessa grein