25 nemar í starfsnámi hjá Skoda mun brátt taka Kamiq og breyta litla sportjeppanum í einstakan rallbíl
Það getur ekki verið leiðinlegt að fá að búa til rallýbíl í starfsnáminu! Nemar hjá Skoda eru að smíða rallútgáfu af Kamiq með aðstoð akstursíþróttadeildarinnar. Áður hafa sjö hópar nema í starfsnámi hjá framleiðandanum hannað og smíðað eigin hugmyndabíla
En á þessu ári munu lærlingar Skoda fá smá aðstoð frá akstursíþróttadeild fyrirtækisins til að klára Kamiq rallbílinn.
Þar sem nemendur geta reitt sig á innsýn frá akstursíþróttateymi Skoda, eigum við líka von á nokkuð raunsannri vélrænni uppfærslu.
Fjórhjóladrif er sterkur möguleiki í ljósi þess að rallýbíllinn er stuttur og ef þörf er á meira afli gætu nemendur jafnvel sett 242 hestafla 2,0 lítra aflrás frá Skoda Octavia vRS undir vélarhlífina á Kamiq, þar sem báðir bílarnir eru byggðir á afbrigði af MQB grunni Volkswagen Group.
Innréttingin mun fá álíka hrífandi yfirhalningu. Hlutir eins og veltibúr, kappaksturssæti, sex punkta öryggisbeisli sérstakt stafrænt rall-mælaborð, munu allir birtast í farþegarýminu, þar sem sumir þessara íhluta eru líklega sóttir úr birgðageymslum varahlutadeildar Skoda Motorsport.
Hugmyndabíllinn verður settur saman af hópi 25 lærlinga við Skoda iðnskólann í Mlada Boleslav í Tékklandi.
Verkefnið markar 120 ára afmæli Skoda Motorsport og er það unnið sérstaklega til að fagna velgengni fyrirtækisins í rallheiminum.
Skoda hefur enn ekki ákveðið dagsetningu fyrir „nemendabíl“ þessa árs. Hins vegar voru fyrri verkefni vörumerkisins, eins og Funstar pallbíllinn og CitiJet fellibíllinn, opinberuð á Worthersee-búnaðarhátíðinni í Austurríki, en sú hátíð fer næst fram í maí 2022.
Fylgir fyrri verkefnum
Þessi nýja rallútgáfa Kamiq fylgir verkefnum eins og Slavia roadster og sérlega vel hannaðri pallbílaútgáfu af Kodiaq, sem kallast Mountiaq.
(frétt á vef Auto Express)
Umræður um þessa grein