„Of mikið er passlegt,“ sagði maðurinn og það eru orð að sönnu. Hvað er verra en kraftlaust ökutæki? Það er nú það! Hér er til umfjöllunar þeysireið á mótorhjóli; hjóli sem er þó fjarri því að vera kraftmikið. Hvernig má það vera?
Hér er „á ferðinni“, í orðsins fyllstu merkingu, stórmagnaður náungi. Undirrituð hefur fjallað um hann áður en þetta er brasilískur uppfinningamaður sem hefur meðal annars prófað sig áfram með gufuvélina og sett hana á vissan hátt í nútímaskrúða.
Hann kallar sig Professor Pardal á YouTube. Það er skemmtilegur húmor, því Georg gírlausi heitir nefnilega Professor Pardal á portúgölsku og spænsku. Gyro Gearloose heitir þetta sköpunarverk Carls Barks á ensku.
Hér fyrir neðan er Georg gírlausi nútímans á fljúgandi ferð og tilfinningin virðist góð, eins og sést:
Fleiri karakterar sem kalla má uppfinningamenn:
Hvað næst? Jú, Tesla með þotumótorum
Allt rauðglóandi í kringum „The Rocketman“
Sexhjóla Tesla verður til
Er gufuvélin kannski málið eftir allt saman?
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein