ID.5 GTX verði meira „sexý“ en ID.4
Volkswagen mun afhjúpa hugmynd að nýjum bíl sem er náskyldur bróður sínum ID.4. Hann mun heita ID.5 GTX og er fjórhjóladrifinn, hraðskreiðari og með hallandi þaklínu.
Meira „sexý“
Myndirnar sem komu frá Wolfsburg sýndu þennan nýja grip sveipaðan litríkum felubúningi sem aldrei fyrr.
Felubúningurinn felur reyndar aðeins hluta af smáatriðum í hönnuninni sem gaman hefði verið að sjá en hann felur ekki heildarstílnum – en hann er flottur.
Að framan lítur þessi bíll nánast eins út og ID.4 bíllinn sem einkennist af mjóu LED ljósunum, heilu grillinu og stóru áberandi VW merkinu í miðju.
Hönnuðirnir hafa svo sveigt línuna þegar aftar dregur og myndað ávala þaklínu sem endar í háum afturenda í anda BMW X6 og Mercedes GLC. Afturljósin svipuð og á ID.4
Meira afl
ID.5 GTX verður byggður á MEB grunninum sem sérhannaður er fyrir rafbílalínu Volkswagen. Hann verður knúinn áfram með tveimur rafmótorum, einum á hvorri drifrás (framan og aftan). Ekki hefa verið gefnar út neinar hestafla- og togtölur en GTX merkingin þýðir að ID.5 tilheyri kraftmeiri hópnum í fjölskyldunni.
Þess má geta að ID.4 GTX sem nýlega var kynntur er um 295 hestöfl, knúinn áfram með tveimur mótorum, einum á hvorri aflrás og þannig með aldrifi.
Kemur snemma árs 2022
VW hefur lagt áherslu á sýningarbíllinn í Munchen verði sem næst framleiðsluútgáfunni sem þýðir líklega að ekki verða stórar breytingar á bílnum þegar hann kemur í sýningarsali hjá umboðsaðilum.
Frekari upplýsinga er að vænta á næstu vikum en við munum sjá djásnið þegar sýningin opnar þann 7. september næstkomandi.
Áætlað er að sala á ID.5 GTX hefjist snemma árs 2022.
Byggt á grein Autoblog.
Umræður um þessa grein