Heimsmetin eiga hug manns allan þessa dagana. Þá daga sem maður slær þau ekki sjálfur er gott að skoða heimsmet annarra. Í gær var það lengsti bíll í heimi, sem sló eigið met, en í dag eru það önnur bílatengd met og jafnvel heimsmet.
Hversu mörgum klappstýrum má koma fyrir í Smart bíl?
Já, heldur óheppileg tilraun á tímum farsótta en þetta er sem betur fer frá árinu 2016 og er tilraun til að slá heimsmet. Fyrra met (frá 2011) var 20, það er að segja að 20 klappstýrur komust fyrir í svona apparati, en met það met var jafnað þegar 20 stelpur, Comets klappstýrurnar, tróðu sér inn í þennan Smart sem er 2.69 metra langur.
Nú skyldi maður ætla að þetta met mætti auðveldlega slá með því að safna saman agnarsmáum klappstýrum en það er ekki hægt því Guinness er harður húsbóndi heimsmetanna. Hann setur viðmið og þurfa stýrurnar að hafa náð 18 ára aldri og lágmarkshæð miðast við 153 sentímetra.
Hvað sem því líður þá er svarið enn sem komið er 20.
Fólk var greinilega dálítið í svona troðningi árið 2016 því næsta met er frá því á jóladag það sama ár.
Tesla Model S P100D
Þá, jólin 2016, var nefnilega mikill troðningur þegar 19 manns voru samtímis inni í Teslu Model S P100D. Þetta myndband (mæli ekki með því að horft sé á allt nema fólk hafi virkilega gaman af veseni) er það eina sem finnst tilraunina. Þetta var því varla heimsmet:
Næstur í röðinni er Fiat 500 árgerð 1972
Þetta er heimsmet og svarið er 14 manns. 14 manns komust inn í þennan bíl sem mörgum þykir nánast of lítill fyrir eina þétta manneskju. En þetta heimsmet er frá því 2011.
Þá er það VW rúgbrauð
Þetta klassíska rúgbrauð. Þann 5. september 2015 voru 50 manns inni í VW rúgbrauði á sama tíma. Það er heimsmet. Eflaust ekki mikill áhugi á að slá þessi heimsmet sem hér um ræðir. Alla vega ekki núna.
Fyrst við erum stödd á slóðum VW er ekki annað hægt en að staldra við bjölluna
VW bjalla árgerð 1964 var árið 2010 vel stöppuð þegar 20 manns tróðust í einni slíkri. Það var heimsmet. Þó maður botni yfirleitt ekkert í svona tilraunum sem hafa með troðning í bílum að gera þá er vitglóra í þessari:
Háskólanemar við Asbury University í Kentucky vildu með þessum gjörningi vekja fólk til umhugsunar um mansal. Og slógu heimsmet um leið!
Fleiri heimsmet:
Heimsmet í hverju?
Furðulegt heimsmet Han Yue
Kitty O´Neil mátti ekki aka hraðar en karlarnir
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein