Ónei! Hvað gerir hann núna? Crazy Rocket-man er enn á ferðinni og að sjálfsögðu er allt rauðglóandi „undir“ honum… Bob Maddox eða Rocket-man þeysist hér áfram á þotuknúnu hjólabretti á 80 kílómetra hraða í Cederville í Kaiforníu.
Það er frekar skemmtilegt að horfa á þennan furðufýr því hann skemmtir sér iðulega konunglega við einhverjar tilraunir sem eru, ja, dálítið sérstakar og á meðan er eitthvað að steikjast. Hlýtur að vera.
Ég meina, maðurinn situr á rakettu!
Fleira rauðglóandi:
Allt rauðglóandi í kringum „The Rocketman“
Hvað næst? Jú, Tesla með þotumótorum
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein