Hvað er jepplingur?
Við á Bílablogginu vorum að velta þessari spurningu fyrir okkur en komumst ekki að sameiginlegri niðurstöðu. Við erum sennilega allir með okkar eigin hugmynd um hvað það er. Svo er hin spurningin. Hver er munurinn á jeppa og jepplingi? Það er ekki einfalt að svara þessum spurningum og orðabækur virðast koma að takmörkuðu gagni því þær gefa mismunandi niðurstöður.
Bílaumboðin auglýsa ýmist jeppling, borgarjeppa eða einfaldlega jeppa. Hver er eiginlega munurinn? SUV eða Sport Utility Vehicle er svo erlent hugtak sem gæti náð yfir þetta allt eða kannski bara sumt af áðurnefndu? Við höfum þýtt SUV sem sportjeppi.
Hver er ykkar skoðun eða skilgreining? Þið getið látið okkur vita á Facebook síðu Bílabloggsins.
Umræður um þessa grein