AB varahlutir hafa sýnt og sannað að þar vinnur fólk sem til er í margs konar sprell þegar það á við. Í gær gafst auðvitað tækifæri til að bregða á leik og vera með galsa því þann fyrsta apríl má margt sem aðra daga telst tilheyra gráu svæði.
Það er óhætt að segja að varaliturinn hafi farið þeim vel, mönnunum á myndinni með Facebookfærslu AB varahluta. Þó fylgdi færslunni ekki hvort tekist hafi að láta einhverja hlaupa fyrsta apríl en hér er færslan sem að vonum hefur vakið lukku á Facebook:
Gott grín er gulls ígildi!
Þessu tengt:
Þríeyki AB Varahluta slær í gegn
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein