Gamlir nýir bílar
Bílar sem standa óhreyfðir, óseldir og ónotaðir á hinum og þessum bílastæðum um heim allan (kannski ekki alveg núna þessi misserin vegna Covid) nema þúsundum en í gegnum árin hafa eftirársbílar safnast upp – og sumir seljast bara alls ekki.
Framleitt eftir pöntun
Ísland er náttúrulega bara örmarkaður og fleiri og fleiri bílakaupendur panta bíla sína úr vefverslun bílaumboðanna og laga að sínum þörfum. Þannig fer kannski bíllinn þinn ekki í framleiðslu fyrr en þú hefur pantað hann. Sniðug lausn en tímafrek. Sérpantaðan bíl getur tekið að meðaltali tvo til þrjá mánuði að afgreiða og þar með talið að framleiða.
Bílasalar drullusokkar?
Í Bandaríkjunum eru bílasölumenn taldir þeir slóttugustu af öllum sem selja vöru eða þjónustu – kannski að undanskildum fasteignasölum. En hvað með kúnnana? Þeir halda að það sé hægt að semja um topp uppítökuverð og hámarksafslátt af nýja bílnum. Þeir eru til í að gera næstum „allt” til að fá betri díl. Þeir taka með sér aðstoðarmenn sem vita oft minna en þeir sjálfir hvernig kaupin á eyrinni fara fram.
Hér eru nokkur atriði sem ágætt er að hafa í huga við bílakaup.
- Já, bíllinn sem við vorum að auglýsa á 3.990 (þegar bíllinn sem þig langar í kostar 5.990) – það er sko bíll sem er alveg berrassaður, grunntýpa, vínylsæti, beinskiptur með eins lítra vél. Komdu vel undirbúinn, tékkaðu á því sem er í boði.
- Umboðin kaupa bílana sem þau selja af framleiðanda. Erlendis er mesta salan rétt fyrir mánaðarmót – þá er bílasalinn að safna fyrir afborgun af bílum sínum. Ef þú ert búinn að ákveða bíl og hann er til á lager, óskaðu þá eftir elsta nýja bílnum. Bílasalinn vill losna fyrst við hann.
- Semdu um verðið á bílnum sem þú ætlar að kaupa – ekki horfa á myndina í bæklingnum.
- Horfðu frekar á greiðslubyrðina á mánuði en lokaverð.
- Bílasalinn þarf að selja gamla bílinn hafi hann tekið hann upp í. Hann þarf að þrífa, kannski skipta um perur, dekk eða einhverjar smáviðgerðir. Hann þarf að greiða vexti af fénu sem hann festir í bílnum og svo kannski situr hann uppi með bílinn í marga mánuði í sölu.
- Tékkaðu á uppítökuverði annars staðar en í umboðinu sem þú ert að spá í að skipta við.
- Ef þú kaupir bíl á „sértilboði” máttu vera viss um að gamli bílinn þinn hefur allavega lækkað um sömu upphæð ef ekki hærri.
- Ekki fá samviskubit þegar bílasalinn segir „við fáum bara ekki meiri afslátt en þetta”.
- Ungur, fjallmyndarlegur sölumaður (af öllum kynjum) getur alveg truflað einbeitingu kaupandans.
- Yfirleitt eru örfáir asnar í greininni sem spilla fyrir öllum þeim frábæru aðilum sem selja bíla á markaðnum.
Endurvinnsla nýlegra bíla
Að sjálfsögðu er erfiðara að endurvinna bíl en tómata. Þegar þúsundir bíla standa óseldar á einhverjum akri, gömlum herflugvöllum eða hafnarsvæðum er ekki með öllu einfalt að eyða þeim.
Það er hins vegar deginum ljósara að þegar ný árgerð kemur, þýðir ekki að hanga með gömlu gerðina við hliðina á þeirri nýju og minnka möguleikann á sölu hennar. Því verður gamla árgerðin að hverfa.
Af hverju gefa framleiðendur ekki bara bílana í stað þess að láta ákveðið hlutfall þeirra grotna niður sem endar svo í pressunni? Þá myndu bílakaupendur bara bíða eftir að nýja árgerðin kæmi og þeir fengju eins til tveggja ára bíl gefins – það væri nú aldeilis bissness.
Nokkur bílastæði í stærri kantinum
Hér má sjá nokkrar myndir sem ég afritaði af Google Maps í tilefni skrifanna. Þessar myndir voru gúgglaðar í dag en aldur þeirra getur verið frá eins til þriggja ára, jafnvel eldri segir Google. Hér má allavega sjá helling af bílum.
Umræður um þessa grein